Allar spurningar og svör

Undirskriftasafnanir

Undirskriftasafnanir geta falið í sér vinnslu persónuupplýsinga sem persónuverndarlögin gilda um. 

Hvað þarf að hafa í huga varðandi undirskriftasafnanir?

Söfnun undirskrifta á Netinu telst vera vinnsla persónuupplýsinga sem fellur undir gildissvið persónuverndarlaga. Þar af leiðandi þarf að fylgja öllum ákvæðum persónuverndarlaganna, svo sem um heimildir til vinnslu og fræðslu gagnvart þeim sem skrifa undir. 

Söfnun undirskrifta á pappír getur einnig talist vera vinnsla persónuupplýsinga sem fellur undir gildissvið persónuverndarlaganna að því gefnu að undirskriftirnar séu varðveittar í skipulagðri skrá.

Sú heimild sem kemur einkum til greina er samþykki þess sem skrifar undir. Auk heimildar verður vinnslan að fullnægja meginreglum laganna, þ. á. m. að persónuupplýsingar séu fengnar í skýrt tilgreindum, lögmætum og málefnalegum tilgangi og ekki unnar frekar í öðrum og ósamrýmanlegum tilgangi. Þá ber ábyrgðaraðila (þ.e. þeim sem ákveður tilgang og aðferðir við vinnslu persónuupplýsinga) að veita hinum skráða fræðslu um vinnsluna, þ. á. m. um tilgang hennar og hvert stendur til að miðla undirskriftunum.



Var efnið hjálplegt? Nei