Tilkynntir öryggisbrestir til Persónuverndar árið 2020 – Tölfræði

Persónuvernd hefur tekið saman tölfræði yfir þá 217 öryggisbresti sem tilkynntir voru til stofnunarinnar árið 2020. Fyrirhugað er að uppfæra tölfræðina mánaðarlega frá 1. mars næstkomandi.

Skipting tilkynninga um öryggisbresti eftir tilkynnendum þeirra

Skífuritið hér að neðan sýnir hvernig tilkynningar um öryggisbresti skiptast í flokka eftir því hver tilkynnti um þá til Persónuverndar. Í þeim tilvikum þar sem tilkynnandi féll í fleiri en einn flokk var leitast við að setja hann í þann flokk sem helst lýsti starfsemi hans. Þá skal tekið fram að undir flokkana Fjármálastofnanir, Heilbrigðisþjónusta og Menntastofnanir heyra bæði opinberir aðilar og einkaaðilar.

Flokkar-fyrirtaekja-og-stofnana


Skipting tilkynninga um öryggisbresti eftir tegundum þeirra

Skífuritið hér að neðan sýnir hvernig tilkynningar um öryggisbresti skiptast í flokka eftir tegundum þeirra. Flokknum Annað tilheyra annars vegar öryggisbrestir sem falla ekki undir hina flokkana og hins vegar tilkynningar um atvik sem falla ekki undir skilgreiningu persónuverndarlaga og þar með tilkynningarskyldu vegna öryggisbresta.

Flokkar-oryggisbresta


Loks má hér sjá súlurit sem sýna fjölda hverrar tegundar öryggisbresta eftir mánuðum ársins 2020.

Graf1
Graf2
Graf3


Graf4
Graf5
Graf6
Graf7
Graf8



Var efnið hjálplegt? Nei