Úrlausnir

Niðurstöður í samræmdu úttektarverkefni

2. nóvember 2004

2.11.2004

Persónuvernd hefur, fyrir sitt leyti, lokið úttektarverkefni sem ákveðið var að ráðast í á fundi forstjóra norrænu persónuverndarstofnanna 20.-21. nóvember árið 2000.

Persónuvernd hefur, fyrir sitt leyti, lokið úttektarverkefni sem ákveðið var að ráðast í á fundi forstjóra norrænu persónuverndarstofnanna 20.-21. nóvember árið 2000. Verkefnið felst í því að í hverju Norðurlandanna, þ.e. á Íslandi, í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, skyldi kanna meðferð persónuupplýsinga um starfsumsækjendur hjá þremur aðilum. Að því loknu skyldi samin sameiginleg skýrsla þar sem fram kæmi hvert umfang vinnslu upplýsinganna væri og hvort unnið væri í samræmi við lög. Sú skýrsla verður birt hér á heimasíðunni þegar hún er fullgerð.

Hér á landi voru valdir þrír aðilar og er hér unnt að nálgast skýrslur um umrædda vinnslu persónuupplýsinga hjá þeim. Þessir aðilar eru: Securitas, Actavis og Tollstjóraembættið.





Var efnið hjálplegt? Nei