Fréttir

Upptaka og glærur af fundi um stafrænar áskoranir 7. apríl

12.4.2022

Þann 7. apríl síðastliðinn héldu Fjarskiptastofa, Fjölmiðlanefnd, Landskjörstjórn, lögreglan, netöryggissveitin CERT-IS og Persónuvernd sameiginlegan rafrænan fund um stafrænar áskoranir frambjóðenda í aðdraganda kosninga.

Erindi fluttu Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, Gyða Ragnheiður Bergsdóttir, lögfræðingur hjá Persónuvernd, Skúli Bragi Geirdal, verkefnastjóri hjá Fjölmiðlanefnd, Arnar Stefánsson, lögfræðingur hjá Fjarskiptastofu, María Rún Bjarnadóttir, verkefnastjóri hjá ríkislögreglustjóra og Bryndís Bjarnadóttir, sérfræðingur í netöryggissveit Cert-IS. Fundarstjóri var Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar.

Fundurinn var tekinn upp og má nálgast upptökuna hér.

Glærur fyrirlesara:

Landskjörstjórn og ný kosningalög - Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar

Notkun frambjóðenda á samfélagsmiðlum fyrir sveitarstjórnarkosningar 2022, Gyða Ragnheiður Bergsdóttir, lögfræðingur hjá Persónuvernd

Upplýsingaóreiða og Ad Library, Skúli Bragi Geirdal, verkefnastjóri hjá Fjölmiðlanefnd

Óumbeðin fjarskipti í aðdraganda kosninga, Arnar Stefánsson, lögfræðingur hjá Fjarskiptastofu

Stafræn brot, María Rún Bjarnadóttir, verkefnastjóri hjá ríkislögreglustjóra

Hvernig á að halda samfélagsmiðlum öruggum? Bryndís Bjarnadóttir, sérfræðingur í netöryggissveit Cert-IS



Var efnið hjálplegt? Nei