Fréttir

Streymi viðburða – nokkur hagnýt ráð

21.5.2021

Skólaslit, fermingar, tónleikar tónlistarskóla, íþróttaviðburðir og fleira er á döfinni á næstunni.        Í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem nú ríkja í þjóðfélaginu hafa sífellt fleiri gripið til þess að streyma beint frá viðburðum til að bregðast við fjöldatakmörkunum.

 
Í mörgum tilfellum er hægt að bera kennsl á þá einstaklinga sem sjást í streyminu og þá fellur streymið undir reglur um persónuvernd.

Í þessum tilfellum er gott að hafa eftirfarandi atriði í huga:

• Streymdu aðeins því sem nauðsynlegt er.
• Upplýstu alla þá sem koma að viðburðinum um að honum sé streymt.
• Settu upp skýr skilti/merkingar þar sem fram kemur að viðburðinum verði streymt og hvert myndavélunum sé beint.
• Tilgreindu svæði þar sem engin myndataka fer fram.
• Ef tilgangurinn með streyminu er eingöngu til að sýna viðburðinn, skaltu ekki taka hann upp og geyma.
• Athugaðu að börn njóta sérstakrar verndar samkvæmt persónuverndarlögunum.
• Vertu meðvitaður um hvort unnið er með sérstakar persónuupplýsingar sem gætu flokkast sem viðkvæmar persónuupplýsingar, t.d. heilsufarsupplýsingar eða upplýsingar um trúarbrögð og lífsskoðanir.
• Gangið úr skugga um að tæknilausnirnar sem notast er við séu nægilega öruggar.
• Hafið í huga að viðstaddir geta mótmælt því að birtast í streyminu. Gott er að útbúa fyrirfram leiðbeiningar um hvernig skrá skuli andmælin og bregðast við þeim.



Var efnið hjálplegt? Nei