Fréttir

Stefna úttekta og frumkvæðisathugana fyrir árið 2023

8.2.2023

Persónuvernd hefur ákveðið að árið 2023 verði við ákvörðun um úttektir og frumkvæðisathuganir einblínt á vinnslu persónuupplýsinga í eftirfarandi forgangsröð:

1. Vinnsla persónuupplýsinga í snjalllausnum/hugbúnaðarkerfum fjármálafyrirtækja.
2. Vinnsla persónuupplýsinga í snjalllausnum/hugbúnaðarkerfum vátryggingafélaga.
3. Gerð persónusniða og örnálgun (e. microtargeting).
4. Vinnsla persónuupplýsinga á sviði fjártækni.
5. Vinnsla persónuupplýsinga á sviði heilbrigðistækni.

Þessi stefna útilokar ekki að annars konar mál verði tekin til frumkvæðisathugunar eða úttektar ef upp koma aðkallandi mál sem þarf að bregðast skjótt við. Ákvörðun um framangreinda forgangsröð byggist á yfirferð yfir þau mál sem hafa verið til skoðunar hjá Persónuvernd sem möguleg úttektarmál eða frumkvæðisathuganir, sem og á áherslum stofnunarinnar síðustu ár.



Var efnið hjálplegt? Nei