Fréttir

Nýjar málsmeðferðarreglur Persónuverndar

3.11.2023

Þann 1. nóvember 2023 tóku gildi nýjar reglur um málsmeðferð hjá Persónuvernd .

Reglurnar eru byggðar á eldri málsmeðferðarreglum frá árinu 2021 en þær hafa verið uppfærðar á grundvelli fenginnar reynslu af framkvæmd þeirra. Þá hafa verið gerðar umtalsverðar breytingar á ákvæðum um málsmeðferð kvartana, með hliðsjón af nýlegum breytingum á lögum nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Einnig hafa verið gerðar breytingar á málsmeðferð frumkvæðisathugana og úttekta hjá stofnuninni. Miða þær breytingar að því að stofnunin geti sinnt frumkvæðiseftirliti sínu með frumathugun, sem felst í því að kalla eftir gögnum og upplýsingum frá eftirlitsskyldum aðilum, og tekið, á grundvelli þeirrar athugunar, ákvörðun um hvort eiginlegt stjórnsýslumál verður stofnað. Markmiðið með þessum breytingum er að Persónuvernd geti sinnt eftirliti sínu víðar en stofnunin hefur getað samkvæmt fyrra fyrirkomulagi.



Var efnið hjálplegt? Nei