Fréttir

Meðferð á máli REl-8, vinnsla Jóns Jósefs Bjarnasonar

16.9.2009

Persónuvernd hefur til meðferðar umsókn Jóns Jósefs Bjarnasonar um leyfi til vinnslu persónuupplýsinga.

Þann 3. september sl. barst Persónuvernd umsókn Jóns Jósefs Bjarnasonar um leyfi til vinnslu persónuupplýsinga. Umsóknin lýtur að vinnslu sem er ætlað „að vera verkfæri til áhættugreininga og rannsókna fyrir eftirlitsstofnanir, lögreglu, skattyfirvöld, fjármagnsstofnanir og aðra sem þurfa upplýsingar af þessu tagi [...]" Persónuvernd hefur tekið málið til athugunar og hefur Jóni verið sent svohljóðandi bréf.




Var efnið hjálplegt? Nei