Fréttir

Drög að reglum um erfðarannsóknir

18.8.2008

Persónuvernd hefur samið drög að reglum um framkvæmd erfðarannsókna. Þau eru birt hér. Er öllum sem þess óska heimilt að koma á framfæri athugasemdum við drögin. Umsagnarfrestur er til 1. október 2008.

Ný drög að reglum um framkvæmd erfðarannsókna eru birt hér. Er öllum sem þess óska heimilt að koma á framfæri athugasemdum við drögin. Þess er óskað að umsagnir berist fyrir 1. október 2008.

Drögin lúta að vinnslu persónuupplýsinga við framkvæmd vísindarannsókna þar sem unnið er með erfðaefni manna og upplýsingar um það. Í dag þarf leyfi frá Persónuvernd til slíkrar vinnslu. Nýjum reglum er ætlað að fella leyfisskylduna brott ef viðkomandi einstaklingar hafa samþykkt að upplýsingar um þá séu notaðar við gerð rannsóknar. Er markmiðið að ná fram einfaldari stjórnsýslu, m.a. til hagræðis fyrir þá sem stunda slíkar rannsóknir. 

 

Drög að reglum um erfðarannsóknir.




Var efnið hjálplegt? Nei