Fréttir

Til varnar friðhelgi einkalífsins

4.7.2007

25 ára afmæli persónuverndar á Íslandi

Á þessu ári eru liðin 25 ár frá gildistöku fyrstu laga sem sett voru hérlendis, til verndar einstaklingum vegna skráningar á upplýsingum um einkamálefni þeirra.

Af því tilefni býður Persónuvernd til afmælishófs á Nordica hóteli föstudaginn 6. júlí kl 17-19. Þar verður m.a. dreift veglegu afmælisriti. Í ritinu er safnað saman hugvekjum ýmissa þjóðkunnra aðila um vernd persónuupplýsinga og einkalífsvernd. Þá munu forstjóri Persónuverndar og dómsmálaráðherra flytja stutt ávörp.

 



Var efnið hjálplegt? Nei