Fréttir

Kynning á hugmyndum að skipulagi íslenskrar leyniþjónustu

14.9.2006

Mánudaginn 4. september sl. kom á fund Persónuverndar sérfræðingahópur frá Brussel, sem var staddur hér á landi í boði dómsmálaráðuneytisins í því skyni að kynna hugmyndir sínar um skipulag íslenskrar leyniþjónustu.

Mánudaginn 4. september sl. kom á fund Persónuverndar sérfræðingahópur frá Brussel, sem var staddur hér á landi í boði dómsmálaráðuneytisins í því skyni að kynna hugmyndir sínar um skipulag íslenskrar leyniþjónustu. Hópinn skipa þau Niels Bracke, José Gouveia Almeida og Ave Poom sem öll eru starfsmenn ráðs Evrópusambandsins.

Á fundinum gerði sérfræðingahópurinn stuttlega grein fyrir rökum sem hann telur standa til þess að stofna leyniþjónustu hér á landi og hugmyndum sínum um skipulag slíkrar stofnunar, pólitíska og stjórnunarlega ábyrgð á störfum hennar og eftirlit með störfum hennar, þ. á m. meðferð hennar á persónuupplýsingum.

Undir lok fundarins var tekið fram að af hálfu Persónuverndar yrði engin afstaða tekin til þess sem hafði verið kynnt fyrir fulltrúum stofnunarinnar. Slíkt var ekki talið tímabært, annars vegar sökum þess að áður þyrfti að móta umræddar hugmyndir nánar og hins vegar vegna þess að eingöngu var um að ræða kynningu á hugmyndum sérfræðihópsins, en ekki lá fyrir hvort lagt yrði fram hér á landi frumvarp til viðhlítandi lagasetningar.





Var efnið hjálplegt? Nei