Fréttir

Fjöldi skráninga í vanskilaskrá Lánstrausts

31.7.2006

Samkvæmt gildandi starfsleyfi Lánstrausts ber fyrirtækinu að tilkynna Persónuvernd ársfjórðungslega um hve margir hafi aðgang að skrám þess.

Samkvæmt gildandi starfsleyfi Lánstrausts ber fyrirtækinu að tilkynna Persónuvernd ársfjórðungslega um hve margir hafi aðgang að skrám þess og hverjir það eru, hve margir einstaklingar og fyrirtæki séu á skránum og hve mikið sé skráð af hverri tegund upplýsinga.

Persónuvernd hafa nú borist eftirfarandi upplýsingar frá Lánstrausti:

Áskrifendur að skrám Lánstrausts hf. eru nú um 759. Notendur hjá þessum aðilum eru um 3810, auk notenda hjá RB.

Á vanskilaskrá Lánstrausts hf. eru 16.238 einstaklingar og 6.177 fyrirtæki.

Magn einstakra upplýsinga er eftirfarandi:

Árituð stefna, ábm. - 1.727

Árangurslaust fjárnám - 42.496

Árituð stefna - 15.051

Dómur, ábm. - 87

Dómur - 886

Fyrirtaka nauðungarsölubeiðni - 4.686

Gjaldþrotaúrskurðir - 4.250

Innkallanir - 7.282

Greiðslustöðvun - 14

Auglýst uppboð - 10.570

Skiptalok - 3.721

Vanskil við áskrifendur LT - 110.999





Var efnið hjálplegt? Nei