Fréttir

Málafjöldi á árinu 2014

3.2.2015

Árið 2014 var ekki frábrugðið fyrri árum að því er varðar innsend erindi en málafjöldi stofnunarinnar hefur stöðugt aukist síðustu ár. Aukning nýskráðra mála á árinu 2014 var 8,5% frá fyrra ári. Ný skráð mál á árinu 2014 voru samtals 1.778 en á árinu voru einnig til afgreiðslu 230 óafgreidd erindi frá fyrra ári. Alls hafði stofnunin því til meðferðar 2.008 mál. Þar af höfðu 1.801 mál verið afgreidd við árslok.

Nýskráð mál á árinu 2014

Á árinu 2014 bárust Persónuvernd 613 tilkynningar um vinnslu persónuupplýsinga. Eru þær allar birtar á heimasíðu stofnunarinnar. Eftirfarandi tafla sýnir tegundir nýskráðra mála 2014 og fjölda þeirra:

Tegundir Fjöldi
Erlent samstarf 92
Frumkvæðismál 15
Fyrirspurnir/umsagnir/álit 573
Innri mál 30
Kvartanir/kærur/úrskurðir 87
Kynningar/námskeið/fyrirlestrar 30
Leyfisumsóknir 121
Mál vegna tilkynninga 613
Smíði stjórnvaldsreglna 56
Úttektarmál 2
Veitt leyfi 139
Annað 20
Samtals 1778

Tegundir mála árið 2014

Var efnið hjálplegt? Nei