Fréttir

Hádegisverðarfundur Ský: "Hvar eiga viðkvæmar persónuupplýsingar heima?"

16.10.2013

Miðvikudaginn 23. október 2013 kl. 12-14 á Grand hóteli standa Fókus, faghópur Ský um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu og öryggishópur Ský sameiginlega að hádegisfundi um meðferð viðkvæmra persónuupplýsinga. Meðal þeirra sem flytja erindi á fundinum er starfsmaður Persónuverndar sem mun fjalla um lagaramma viðkvæmra persónuupplýsinga. Fundurinn er öllum opinn en það þarf að skrá sig á hann fyrirfram.

Miðvikudaginn 23. október 2013 kl. 12-14 á Grand hóteli standa Fókus, faghópur Ský um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu og öryggishópur Ský sameiginlega að hádegisfundi um meðferð viðkvæmra persónuupplýsinga. Meðal þeirra sem flytja erindi á fundinum er starfsmaður Persónuverndar sem mun fjalla um lagaramma viðkvæmra persónuupplýsinga. Einnig verður fjallað um vanda ábyrgðaraðila viðkvæmra persónuupplýsinga þegar kemur að því að ákveða hvar eigi að vista viðkvæmar persónuupplýsinga til framtíðar og hvaða kostir séu vænlegir til framtíðar í því sambandi. Þá mun verða fjallað um vistun sjúkraskrárupplýsinga og samtengingu sjúkraskráa. Fundurinn er öllum opinn en það þarf að skrá sig á hann fyrirfram.

Auglýsing Ský um fundinn ásamt skráningarformi.



Var efnið hjálplegt? Nei