Fréttir

Fundur EDPB í nóvember

26.11.2021

57. fundur ráðsins var haldinn 18. nóvember 2021 í Brussel. Helstu atriði á dagskrá voru:

  1. Leiðbeiningar nr. 5/2021 um samspil 3. gr. og V. kafla persónuverndarreglugerðarinnar um flutning persónuupplýsinga úr land

Lagt er upp með þrjú viðmið séu uppfyllt til vinnsla teljist til flutnings:

  • gagnaútflytjandi (ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili) fellur undir gildissvið persónuverndarreglugerðarinnar vegna vinnslunnar,
  • gagnaútflytjandi sendir eða gerir persónuupplýsingarnar aðgengilegar aðila sem flytur gögnin inn (annar ábyrgðaraðili, sameiginlegur ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili);
  • gagnainnflytjandinn er í þriðja landi eða er alþjóðleg stofnun.
Auk þess er leiðbeiningunum ætlað að samræma þá túlkun sem lögð er í hugtakið flutningur

  2Yfirlýsing um stafræna þjónustupakka (e. digital services package) og gagnastefnu (e. Data Strategy) framkvæmdastjórnar ESB.

Í yfirlýsingunni er lögð áhersla á þrjú atriði sem skoða þarf sérstaklega:

  • Skort á vernd á grundvallarréttindum og frelsi einstaklinga
  • Brotakennt eftirlit
  • Hætta á ósamræmi
Í yfirlýsingunni er ítrekuð krafa ráðsins um að banna skuli hvers kyns notkun gervigreindar fyrir sjálfvirka auðkenningu á lífkennaupplýsingum á svæðum sem eru aðgengileg almenningi. Þá er löggjafinn einnig hvattur til að afnema einstaklingsmiðaðar auglýsingar í áföngum og að almennt bann ætti að vera við því að búin séu til persónusnið um börn.



Var efnið hjálplegt? Nei