Fréttir

Danska persónuverndarstofnunin gefur sveitarfélögum fyrirmæli vegna notkunar á skýjaþjónustu Google í grunnskólastarfi

5.2.2024

Danska persónuverndarstofnunin hefur haft til skoðunar notkun 53 sveitarfélaga á nemendakerfi Google, Google Workspace for Education, í grunnskólastarfi. Stofnunin hefur nú birt ákvörðun er varðar hluta málsins og snýr að lögmæti miðlunar sveitarfélaganna á persónuupplýsingum nemenda til Google.

Í ákvörðuninni er komist að þeirri niðurstöðu að sveitarfélögunum hafi verið heimilt að miðla persónuupplýsingum nemenda til Google, í þeim tilgangi að fyrirtækið geti veitt þjónustuna, aukið öryggi og áreiðanleika hennar, átt í samskiptum við sveitarfélögin vegna þjónustunnar og uppfyllt lagaskyldu. Byggir miðlun upplýsinganna á e-lið 1. mgr. 6. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679, þar sem hún er nauðsynleg til að framfylgja lögbundnum verkefnum sveitarfélaganna á grundvelli danskra grunnskólalaga (d. folkeskoleloven). Að mati dönsku stofnunarinnar veita grunnskólalögin hins vegar ekki nægilega skýran grundvöll til þess að sveitarfélögunum sé heimilt að miðla persónuupplýsingum nemenda til Google sem vinnur þær áfram í þeim tilgangi að betrumbæta þjónustuna og aðrar þjónustur, mæla árangur þjónustunnar og þróa nýja eiginleika hennar.

Danska persónuverndarstofnunin hefur lagt fyrir sveitarfélögin að færa vinnsluna til samræmis við persónuverndarlöggjöfina, með því að tryggja að heimild standi fyrir allri miðlun persónuupplýsinga til Google.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni á vefsíðu dönsku persónuverndarstofnunarinnar (https://www.datatilsynet.dk/afgoerelser/afgoerelser/2024/jan/datatilsynet-giver-paabud-i-chromebook-sag).



Var efnið hjálplegt? Nei