Birting viðkvæmra gagna frá lögreglu á vefsíðu

Persónuvernd barst athugasemd vegna viðtals við lögreglumann þar sem hann greindi frá viðkvæmum persónuupplýsingum, sem hann fékk aðgang að í starfi sínu. Persónuvernd gerði athugasemdir við lögreglu og beindi til hennar tilmælum um bætta meðferð trúnaðarupplýsinga.

Efni: Aðfinnsla við birtingu viðkvæmra gagna frá lögreglu í þætti á vef mbl.is

 

Hinn 14. mars 2012 tók stjórn Persónuverndar svohljóðandi ákvörðun í máli nr. 2011/1252:

I.
Bréfaskipti
Persónuvernd vísar til fyrri bréfaskipta í tengslum við þátt sem birtist á vef Morgunblaðsins hinn 27. október 2011. Í þættinum var fjallað um mál af tilefni tilkynningar til lögreglu um árás á starfsmann [...]. Í þættinum var rætt við rannsóknarlögreglumann í tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem í viðtalinu sýndi ljósmyndir af áverkum starfsmannsins, þ. á m. myndir þar sem greina mátti andlit hans. Maðurinn var auk þess nafngreindur og tekið fram að í stað þess að um árás hafi verið að ræða kynni maðurinn að hafa veitt sér áverkana sjálfur.

Með bréfi, dags. 16. nóvember 2011, óskaði Persónuvernd skýringa Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í bréfinu minnti Persónuvernd á bréfaskipti sem áður höfðu átt sér stað vegna birtingar upplýsinga af umræddu tagi, þ.e. við flutning erindis framangreinds rannsóknarlögreglumanns á Læknadögum árið 2010 [...] þar sem hann birti sambærilegar myndir. Bárust Persónuvernd þá skýringar frá lögreglu þess efnis að með bættu verklagi yrði komið í veg fyrir tilvik sem þetta. Í ljósi þess varð niðurstaða bréfaskiptanna sú að Persónuvernd taldi ekki ástæðu til að aðhafast frekar. Hins vegar mæltist stofnunin til þess að framvegis endurtækju sig ekki tilvik eins og það sem hér um ræðir, sbr. bréf stofnunarinnar til lögreglunnar, dags. 1. mars 2010.

Í áðurnefndu bréfi, dags. 16. nóvember 2011, minnti Persónuvernd á þagnarskyldu lögreglu samkvæmt 22. gr. lögreglulaga nr. 90/1996. Að auki áréttaði stofnunin þau sjónarmið sem fram höfðu komið í áðurnefndum bréfaskiptum, en þar minnti hún m.a. á ákvæði í lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga sem líta varð sérstaklega til. Nánar tiltekið var þar um að ræða ákvæði 11. gr. laganna um skyldu til að gæta upplýsingaöryggis, 12. gr. um skyldu til að viðhafa innra eftirlit og grunnreglu 1. tölul. 1. mgr. 7. gr. þar sem m.a. er mælt fyrir um að gætt skuli vandaðra vinnsluhátta við meðferð persónuupplýsinga.

Lögreglan svaraði með bréfi, dags. 2. desember 2011. Þar segir:

„Frá því að fyrrgreint erindi og afstaða Persónuverndar barst embættinu hefur allt verklag við kynningar verið endurskoðað í samræmi við athugasemdir Persónuverndar. Meðal annars hefur það fyrirkomulag verið tekið upp að farið er yfir allar kynningar til að tryggja að þar sé ekki að finna persónugreinanleg gögn þar sem það á ekki við.

Hvað varðar þá umfjöllun sem vísað er til í bréfi Persónuverndar var kannað hjá þeim lögreglumanni sem í hlut átti hvernig staðið hafi verið að miðlun upplýsinga af hálfu lögreglu til umrædds miðils. Fyrir lá að lögreglumaðurinn nafngreinir manninn ekki í viðtali en ljóst er að þær myndir sem þar eru birtar sem og nafn mannsins eru frá lögreglu komin til umrædds fjölmiðils. Lögreglunni var ekki ekki kunnugt um áður en efnið var sett á netið að til stæði að nafngreina manninn eða birta umræddar myndir án þess að andlit hans yrði gert ógreinilegt. Í kjölfar erindis Persónuverndar til lögreglu voru gerðar breytingar á umræddri umfjöllun af hálfu fjölmiðilsins, nafngreining var tekin út auk þess sem andlit hans var gert ógreinilegt. Fyrri útgáfa af þættinum er því ekki lengur aðgengileg á vef umrædds vefmiðils. Það verklag er í gildi við umfjöllun fjölmiðla um störf lögreglu að óskað er eftir því að sjá það efni sem til stendur að birta, til þess m.a. að trygga atriði sem snúa að friðhelgi einkalífs þeirra einstaklinga sem þar kunna að eiga í hluta. Fyrir mistök umrædds fjölmiðils var umrædd umfjöllun ekki send embættinu til skoðunar áður en hún var birt.“


II.
Niðurstaða
Mál þetta var rætt á fundi stjórnar Persónuverndar hinn 14. mars sl. Með vísan til 2. tölul. 3. mgr. 37. gr. var ákveðið að koma á framfæri ábendingu um að bætt yrði úr annmörkum.

Eins og rakið hefur verið hefur stofnunin áður mælst til þess að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gæti varúðar við meðferð slíkra gagna sem hér um ræðir. Þá hefur lögreglan lýst því yfir að með skerptu verklagi verði komið í veg fyrir að tilvik eins og það sem hér um ræðir endurtaki sig. Það hefur hins vegar ekki gengið eftir og lítur Persónuvernd því mál þetta alvarlegum augum.

Komið getur til refsiábyrgðar ef brotið er gegn lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, sbr. 42. gr. laganna. Af 35. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 verður ráðið að mál, þar sem reynt getur á slíkt, komi til kasta ríkissaksóknara. Með vísan til þess var ákveðið á framangreindum fundi að senda honum afrit af bréfi þessu.



Var efnið hjálplegt? Nei