Umsagnir

Umsögn um frumvarp til laga um leigubifreiðar

Umsögn til samgöngunefndar Alþingis

30.11.2001

Persónuvernd barst hinn 13. nóvember 2001 erindi yðar dags. 8. nóvember 2001 þar sem Persónuvernd var sent til umsagnar frumvarp til laga um leigubifreiðar, 167. mál, heildarlög. Frumvarpið er að stofni til samhljóða frumvarpi sem lagt var fram á síðasta þingi, 633. mál. Persónuvernd veitti yður umsögn sína um það frumvarp með bréfi dags. 30. apríl 2001. Með hliðsjón af framansögðu fjallar umsögn Persónuverndar um hið nýja frumvarp annars vegar um hvort því hafi verið breytt í samræmi við framkomnar athugasemdir stofnunarinnar við fyrra frumvarp. Hins vegar fjallar umsögnin um hvort breytingar frá hinu eldra frumvarpi gefi tilefni til að gera aðrar athugasemdir en þegar hafa verið gerðar.


Í fyrrgreindri umsögn Persónuverndar voru gerðar fimm athugasemdir við það frumvarp sem lagt var fram á vorþinginu. Þær lutu að ákvæðum frumvarpsins um gagnagrunn með persónuupplýsingum um atvinnuleyfishafa og útstöðvar frá þeim gagnagrunni:

Í fyrsta lagi var í umsögn Persónuverndar fjallað um 1. mgr. 2. gr. frumvarpsins, en samkvæmt henni yrði Vegagerðinni m.a. falin útgáfa atvinnuleyfa og leyfa fyrir forfallabílstjóra. Því næst sagði í ákvæðinu að Vegagerðinni væri falin "starfræksla gagnagrunns sem veitir m.a. staðfestingu atvinnuleyfa og heimildir til undanþágu frá akstri eigin bifreiðar. Í framangreindan gagnagrunn eru skráðar þær lágmarksupplýsingar sem nauðsynlegar eru til útgáfu atvinnu- og/eða starfsleyfis." Benti stofnunin á að af orðalagi ákvæðisins mætti draga þá ályktun að hér væri um að ræða heimildarákvæði fyrir Vegagerðina til að halda málaskrá yfir umsóknir um atvinnuleyfi og leyfi fyrir forfallabílstjóra. Ekki væri þörf á slíku heimildarákvæði enda er stjórnvöldum alla jafnan áskilinn réttur til að halda slíkar skrár. Um meðferð upplýsinga í þeim skrám almennt eftir stjórnsýslulögum nr. 37/1993, með áorðnum breytingum, upplýsingalögum nr. 50/1996, með áorðnum breytingum og eftir atvikum lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga
.

Í hinu nýja frumvarpi hefur verið bætt við umrætt ákvæði árétting þess að við skráningu gagna í gagnagrunninn og meðferð þeirra skuli gæta ákvæða laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Umræddu ákvæði frumvarpsins hefur hins vegar ekki verið breytt efnislega að öðru leyti frá fyrra frumvarpi. Því leyfir Persónuvernd sér að ítreka að ekki verður séð þörf sé á setningu sérstaks lagaákvæðis fyrir starfrækslu gagnagrunns með persónuupplýsingum um leigubílstjóra, ef tilgangurinn með slíkri vinnslu upplýsinganna er eingöngu að undirbúa "útgáfu atvinnu- og/eða starfsleyfis" eins og segir í frumvarpinu. Sérstakt ákvæði um gagnagrunn af þessu tagi, sem inniheldur ýmiss konar persónuupplýsingar um leigubifreiðastjóra, getur að ósekju gefið tilefni til að ætla að notkun upplýsinganna sé ekki bundin við undirbúning á útgáfu leyfa til bifreiðastjóra.

Í öðru lagi var gerð við það athugasemd í fyrri umsögn Persónuverndar að samkvæmt 2. mgr. 2. gr. frumvarpsins gæti Vegagerðin "heimilað sérstakar útstöðvar frá gagnagrunninum á bifreiðastöðvum eða hjá bifreiðastjórafélögum til þess að afgreiða undanþágur skv. 9. gr.". Bent var á að með ákvæðinu gæti Vegagerðin því veitt einstökum bireiðastöðvum og bifreiðastjórafélögum tengingu við umrædda málaskrá sína um tölvunet. Umræddu ákvæði hefur í engu verið breytt í hinu nýja frumvarpi. Því verður að ítreka þá afstöðu Persónuverndar að rök skorti fyrir slíkri samtengingu og er þeirri spurningu enn ósvarað hvers vegna ekki sé hægt að veita viðkomandi bifreiðastöðvum upplýsingar um atvinnuleyfishafa á viðkomandi stöð með einfaldari og viðurhlutaminni hætti. Enn fremur er óljóst hvers vegna gert er ráð fyrir heimild til að tengja bifreiðastjórafélög við umrædda málaskrá, enda útgáfa leyfa samkvæmt lögunum eingöngu í höndum Vegagerðarinnar og einstakra bifreiðastöðva, auk þeirra sveitarstjórna sem samgönguráðherra felur framkvæmd mála er varða leigubifreiðar, sbr. nýja lokamálsgrein 2. gr. frumvarpsins.

Í þriðja lagi var í umsögn Persónuverndar fjallað um skyldu atvinnuleyfishafa skv. 3. mgr. 2. gr. frumvarpsins til að veita Vegagerðinni upplýsingar sem varða atvinnuleyfi þeirra og nýtingu þess. Gerði Persónuvernd athugasemd við að í frumvarpinu var hvergi að finna tæmandi talningu á því hvaða upplýsingar verði skráðar í umræddan gagnagrunn. Þess í stað var að finna samsvarandi upptalningu bæði í almennum athugasemdum með frumvarpinu og í athugasemdum með 2. gr. þess, þar sem segir að skráðar verði upplýsingar um nafn bifreiðastjóra, kennitölur þeirra, heimilisfang, bifreiðastöð, kallnúmer, "nýtingu atvinnuleyfis, heimilað og tekið orlof, útgerðarheimildir vegna veikinda o.fl.". Í hinu nýja frumvarpi hefur orðalagið "o.fl." verið fellt úr upptalningu í athugasemdum með 2. gr. en ekki úr upptalningu í almennum athugasemdum. Verður því að ítreka þá athugasemd Persónuverndar að þar sem frumvarpið gerir ráð fyrir heimild til víðtækra tenginga við gagnagrunninn, sbr. m.a. 2. mgr. 2. gr. frv., væri æskilegt að kveðið væri skýrt á um hversu víðtæk vinnsla persónuupplýsinga væri heimiluð á þessu sviði.

Í fjórða lagi var í umsögn Persónuverndar við hið fyrra frumvarp gerð athugasemd við að í því var ekki kveðið skýrt á um hverjum skuli heimill aðgangur að umræddum gagnagrunni. Hið nýja frumvarp er ekki frábrugðið hinu aldra að þessu leyti. Til dæmis virðist í eftirfarandi texta á bls. 6 í almennum athugasemdum með frumvarpinu gert ráð fyrir að komið sé upp tengingu lögreglu við gagnagrunninn, þrátt fyrir að orðalag frumvarpsins sjálfs geri eingöngu ráð fyrir að Vegagerðin, auk einstakra bifreiðastöðva og bifreiðastjórafélaga, geti haft slíkan aðgang: "Með tilkomu gagnagrunns Vegagerðarinnar verður lögreglu auðveldað eftirlitshlutverk sitt en henni ber að hafa eftirlit með því að á götum úti aki enginn leigubifreið nema hann hafi til þess réttindi." Þá skal ítrekuð sú athugasemd Persónuverndar að hvorki eru færð rök fyrir því í frumvarpinu né athugasemdum hvaða þörf er á að lögregla hafi aðgang að öllum þeim upplýsingum sem gert er ráð fyrir að verði skráðar í umræddan gagnagrunn í stað þess að hafa einungis aðgang að lista yfir atvinnuleyfishafa og handhafa leyfa fyrir forfallabílstjóra.

Í fimmta lagi gerði Persónuvernd athugasemd við að hvorki væri í eldra frumvarpinu vísað til laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga né sett fram ákvæði til varnar lágmarksréttindum hins skráða samkvæmt þeim lögum. Úr þessu hefur nú verið bætt í hinu nýja frumvarpi.


Þær breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu gefa ekki tilefni til annarra athugasemd af hálfu Persónuverndar en að framan greinir. Í ljósi þess sem rakið er hér að framan ítrekar Persónuvernd tillögu sína um að eftirfarandi breytingar verði gerðar á umræddu frumvarpi, en í frumvarpinu hefur 3. mgr. 2. gr. þegar verið breytt í samræmi við tillögu Persónuverndar:


1. 1. mgr. 2. gr. frumvarpsins orðist svo: "Vegagerðin fer með framkvæmd mála er varða leigubifreiðar. Undir starfssvið hennar fellur útgáfa starfsleyfa bifreiðastöðva, útgáfa atvinnuleyfa, útgáfa leyfa fyrir forfallabílstjóra og námskeiðahald." M.ö.o. falli seinni hluti málsgreinarinnar brott.

2. 2. ml. 2. mgr. 2. gr. frv. falli brott.

3. 2. ml. 3. mgr. 9. gr. frv. orðist svo: "Bifreiðastöðvar geta annast veitingu undanþágna."


Beðist er velvirðingar á að ekki tókst að ljúka gerð umsagnar þessarar innan þess frests sem veittur var í erindi yðar.





Var efnið hjálplegt? Nei