Viðbót við þegar veitt leyfi Persónuverndar til Embættis landlæknis

Efni: Viðbót við þegar veitt leyfi Persónuverndar til Embættis landlæknis

Persónuvernd vísar til erindis, sem henni barst frá embætti sóttvarnalæknis og Landlæknisembættinu 9. mars 2021, varðandi bólusetningar við COVID-19. Í erindinu er óskað afstöðu Persónuverndar til þess að aflað verði upplýsinga frá heilsugæslustöðum um hverjir séu þar skráðir notendur þjónustu þeirra. Vísað er í erindinu til þess að notast hefur verið við upplýsingar um lögheimili til að kalla fólk í bólusetningu og er tekið fram í því sambandi að ekki sé alltaf samræmi milli lögheimilisskráningar og dvalarstaðar og þar með hjá hvaða heilsugæslustöð einstaklingur leitar þjónustu.

Með leyfi, dags. 16. desember 2020 (mál nr. 2020123030), heimilaði Persónuvernd embætti sóttvarnalæknis og Landlæknisembættinu tilteknar samkeyrslur vegna umræddra bólusetninga, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 4. gr. reglna nr. 811/2019 um leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga, sbr. 2. mgr. 31. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þá hefur Persónuvernd fjallað um heimild til öflunar símanúmera vegna samkeyrslnanna í bréfi, dags. 29. desember 2020, svo og gefið út viðbót við leyfið, dags. 2. febrúar 2021.

Hér með tilkynnist, með vísan til framangreinds ákvæðis í reglum nr. 811/2019, svo og m.a. 9. tölul. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 90/2018 og 3. mgr. 12. gr. og 2. mgr. 11. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, að heimilt er að afla upplýsinga um hjá hvaða heilsugæslustöð einstaklingar eru skráðir og notast við þær upplýsingar í þeim samkeyrslum sem fyrr eru nefndar. Gert er að skilyrði að fylgt sé öllum þeim skilmálum sem fram koma í framangreindu leyfi, dags. 16. desember 2020.

F.h. Persónuverndar,

Þórður Sveinsson                                Páll Heiðar Halldórsson



Var efnið hjálplegt? Nei