Starfsleyfi Myndmarks - 23. September 2005

Starfsleyfi fyrir Myndmark,
til að annast söfnun og skráningu upplýsinga sem varða fjárhagsmálefni og
lánstraust einstaklinga, í því skyni að miðla þeim til annarra


Hér með tilkynnist að Persónuvernd hefur ákveðið að veita Myndmarki, samtökum þeirra sem dreifa myndbandsefni í gegnum útleigu og heildsölu á Íslandi, kt. 490393-2299, Ármúla 19, Reykjavík, í leyfi þessu nefnt starfsleyfishafi, heimild til að safna og miðla tilteknum persónuupplýsingum sem varða fjárhag og lánstraust einstaklinga, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 246/2001, um söfnun og miðlun upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust og 4. tl. 1. mgr. 7. gr. reglna Persónuverndar nr. 698/2004.


Leyfið heimilar Myndmarki að safna upplýsingum frá myndbandaleigunum á einn lista og færa upplýsingar af honum inn í sérstakt tölvukerfi myndbandaleiganna.


Starfsleyfið er bundið eftirfarandi skilmálum:

1. Söfnun og skráning upplýsinga

Myndbandaleigur, sem eru félagar í Myndmarki, mega safna upplýsingum um þau vanskil sem þar eiga sér stað og senda upplýsingarnar til Myndmarks. Þær upplýsingar sem myndbandaleigurnar mega skrá, skv. framanrituðu, eru nöfn, kennitölur og vanskil , s.s. hvort leigugjöld hafi ekki verið greidd eða myndbandsspólu ekki verið skilað. Óheimilt er að skrá upplýsingar um vanskil nema myndbandaleiga viðhafi ráðstafanir til að tryggja áreiðanleika upplýsinganna, s.s. þá að afhenda leigutaka kvittun þegar hann skilar myndbandi/diski.


Starfsleyfið heimilar ekki vinnslu upplýsinga sem eðli sínu samkvæmt geta ekki haft þýðingu við mat á lánstrausti hins skráða. Aldrei er heimilt að taka í slíka skrá viðkvæmar persónuupplýsingar, sbr. 8. tl. 2. gr. laga nr. 77/2000, með áorðnum breytingum.


Persónuupplýsingar sem eru óáreiðanlegar eða ófullkomnar, miðað við tilgang vinnslu þeirra, skal afmá eða leiðrétta.


Óheimilt er að skrá og/eða miðla upplýsingum um fjárhagsmálefni sem eldri eru en fjögurra ára. Þegar upplýsingar verða fjögurra ára gamlar skal þeim eytt eða þær varðveittar án persónuauðkenna.

2. Miðlun upplýsinga

Starfsleyfishafa er einungis heimilt að miðla upplýsingum um nafn og kennitölu þess viðskiptavinar sem ekki stendur í skilum ásamt upplýsingum um nafn þeirrar myndbandaleigu sem óskaði eftir skráningu viðkomandi á vanskilalistann. Í framkvæmd er kennitala viðkomandi slegin inn í tölvukerfi á myndbandaleigu og gerð fyrirspurn í gagnagrunn starfsleyfishafa, ef vanskil eru fyrir hendi þá er framangreindum upplýsingum miðlað í tölvu myndbandaleigunnar.


Óheimilt er að miðla vanskilalista starfsleyfishafa í heild sinni til einstakra myndbandaleiga.


Óheimilt er að miðla upplýsingum um nafn skuldara ef starfsleyfishafa er kunnugt um að sú krafa sem skráningin byggist á hafi verið greidd eða henni komið í skil með öðrum hætti. Þegar starfsleyfishafi gerir samninga við nýja félaga skal tryggt að fram komi að þeir skuldbindi sig til þess að senda starfsleyfishafa upplýsingar um að skuld hafi verið greidd eða henni með öðrum hætti verið komið í skil.


Sýni hinn skráði sjálfur fram á að umrædd krafa hafi verið að fullu greidd, eða henni komið í skil með öðrum hætti, er starfsleyfishafa óheimil öll frekari vinnsla upplýsinga með nafn hans.


Upplýsingar um skuldastöðu manna má ekki veita með þeim hætti að þær geti verið grundvöllur mats á fjárhagslegri stöðu annars en þess er þær varða.

3. Skyldur einstakra myndbandaleiga

Myndbandaleigur sem eru félagar í Myndmarki skuldbinda sig til að tilkynna þegar í stað um greiðslu skuldar en verði misbrestur á því kann viðkomandi myndbandaleigu að verða meinaður aðgangur að vanskilalista starfsleyfishafa. Ber sérhver myndbandaleiga ábyrgð á að slíkar upplýsingar berist starfsleyfishafa. Jafnframt er þeim óheimilt að taka afrit af listanum, samtengja hann við aðra skrá eða vinna með hann á nokkurn annan hátt, þótt viðkomandi kunni að fá tækifæri til slíks, t.d. fyrir mistök.

4. Réttur hins skráða

Einstaklingur sem er á skrá starfsleyfishafa á, hvenær sem er, rétt á að fá vitneskju um hvaða upplýsingar um hann er eða hefur verið unnið með, tilgang vinnslunnar, hver fái, hafi fengið eða muni fá upplýsingar um hann, hvaðan upplýsingarnar hafi komið og hvaða öryggisráðstafanir séu viðhafðar við vinnsluna, að því marki sem það skerðir ekki öryggi vinnslunnar.


Hinn skráði á rétt á að fá endurrit eða ljósrit af þeim upplýsingum sem starfsleyfishafi hefur undir höndum um viðkomandi. Ekki má krefjast hærra endurgjalds af þessari þjónustu en sem nemur þeim upphæðum sem innheimta má á hverjum tíma skv. gjaldskrá forsætisráðuneytis fyrir ljósrit og afrit sem veitt eru á grundvelli upplýsingalaga.


Verða skal við beiðni hins skráða um upplýsingar svo fljótt sem verða má og eigi síðar en innan eins mánaðar frá móttöku beiðninnar. Ef sérstakar ástæður valda því að ómögulegt er að afgreiða erindið innan eins mánaðar er starfsleyfishafa heimilt að gera það síðar en þegar svo hagar til skal hann, innan mánaðarfrestsins, gefa skriflegar skýringar á ástæðum tafarinnar og hvenær svars sé að vænta.


Hafi starfsleyfishafi í vörslum sínum frekari upplýsingar um hinn skráða en þær sem beiðni lýtur að skal hann gera hinum skráða grein fyrir því. Jafnframt skal gera hinum skráða grein fyrir rétti sínum til þess að fá að kynna sér efni skrár af eigin raun.

5. Skyldur starfsleyfishafa

5.1. Viðvörunarskylda
Áður en starfsleyfishafi safnar persónuupplýsingum í samræmi við ákvæði 2. gr. leyfis þessa skal hinum skráða áður hafa verið gert viðvart og honum skýrt frá þeim atriðum sem talin eru í 2. mgr. 16. gr. laga nr. 77/2000, með áorðnum breytingum. Slíka viðvörun skal senda eigi síðar en 14 dögum áður en upplýsingunum er miðlað í fyrsta sinn.

5.2. Vandaðir vinnsluhættir
Starfsleyfishafi skal, við alla vinnslu persónuupplýsinga gæta þess að haga vinnslunni með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og í samræmi við vandaða vinnsluhætti persónuupplýsinga. Í því felst m.a. að hann skal gæta þess að upplýsingarnar séu áreiðanlegar og uppfærðar eftir þörfum. Persónuupplýsingar sem eru óáreiðanlegar eða ófullkomnar, miðað við tilgang vinnslu þeirra, skal afmá eða leiðrétta. Hafi röngum eða villandi upplýsingum verið miðlað eða þær notaðar ber starfsleyfishafi, eftir því sem honum er frekast unnt, að hindra að það hafi áhrif á hagsmuni hins skráða.

5.3. Öryggi vinnslu
Starfsleyfishafi skal gera viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar gegn ólöglegri eyðileggingu, gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi.

5.4. Vinnsluaðili
Starfsleyfishafa er heimilt að semja við tiltekinn aðila um að annast, í heild eða að hluta, þá vinnslu persónuupplýsinga sem hann ber ábyrgð á enda hafi hann áður sannreynt að umræddur vinnsluaðili geti framkvæmt viðeigandi öryggisráðstafanir og viðhaft innra eftirlit.
Hverjum þeim er starfar í umboði starfsleyfishafa eða vinnsluaðila, að vinnsluaðila sjálfum meðtöldum, og hefur aðgang að persónuupplýsingum, er aðeins heimilt að vinna með persónuupplýsingar í samræmi við fyrirmæli ábyrgðaraðila nema lög mæli fyrir á annan veg.

5.5. Starfsmenn
Hver sá sem starfar hjá starfsleyfishafa er þagnarskyldur um þau atriði sem hann kemst að í starfi sínu og leynt eiga að fara. Sérhver starfsmaður starfsleyfishafa skal undirrita þagnarheit þegar eftir útgáfu leyfis þessa, hafi hann ekki þegar gert það. Nýir starfsmenn skulu undirrita slíkt heit þegar þeir hefja störf hjá starfsleyfishafa.


Upplýsingagjöf samkvæmt starfsleyfi þessu mega einungis annast þeir starfsmenn Myndmarks sem eru og verða sérstaklega til þess valdir og Persónuvernd tilkynnt um.

5.6. Annað
Auk ákvæða starfsleyfis þessa skal starfsleyfishafi ávallt fara að lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau lög eru á hverjum tíma, sbr. nú lög nr. 77/2000 með áorðnum breytingum, auk annarra laga og réttarreglna sem í gildi eru hverju sinni, sbr. m.a. reglugerð nr. 246/2001 um söfnun og miðlun upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust og reglur nr. 299/2001 um öryggi persónuupplýsinga.

6. Gildistími

Starfsleyfi þetta gildir til 23. september 2006.



Var efnið hjálplegt? Nei