2012

Persónuvernd stofnun ársins 2012

Á föstudaginn voru kynntar niðurstöður könnunar um Stofnun ársinsStofnun_arsins_litid 2012 við hátíðlega athöfn á Hilton Hótel Nordica. Um er að ræða starfsánægjukönnun sem gerð var á vegum SFR stéttarfélags í almannaþjónustu og fjármálaráðuneytisins. Hlaut Persónuvernd hæstu einkunn sem stofnun ársins 2012 í flokki lítilla stofnanna með heildareinkunnina 4,7 af 5.

Lesa meira
 

Aukið álag hjá Persónuvernd

Stöðug aukning hefur orðið í fjölda innkominna erinda hjá Persónuvernd, en það sem af er þessu ári hafa 612 ný mál verið skráð hjá stofnuninni. Til samanburðar voru nýskráð mál þann 1. maí 2008 alls 361. Er því um 75% aukningu að ræða á fjórum árum. Á sama tíma hefur starfsmönnum stofnunarinnar fækkað. Haldi áfram sem horfir má búast við því að umtalsverðar tafir, umfram það sem nú er, verði á afgreiðslu mála hjá stofnuninni seinni part árs auk þess sem stofnunin sér ekki fram á að geta sinnt lögbundnum verkefnum sínum með fullnægjandi hætti.

Lesa meira
 

Reglur um skiptingu starfa á milli stjórnar og starfsmanna Persónuverndar.

Stjórn Persónuverndar hefur sett reglur um skiptingu starfa milli sín og forstjóra. Þær hafa verið birtar í B-deild Stjórnartíðinda og eru nr. 231/2012. Þær eru settar á grundvelli 8. mgr. 36. gr. laga nr. 77/2000.
Lesa meira
 

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2012

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn er haldinn hátíðlegur í níunda sinn í dag,  7. febrúar. Þemað í ár er „Tengjum kynslóðir” og munu yfir 60 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag þar sem til umfjöllunar verða ýmis verkefni þar sem tæknin tengir kynslóðir saman.

Lesa meira
 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica