Fréttir

Persónuvernd veitt leyfi til að áfrýja beint til Hæstaréttar

17.4.2024

Persónuvernd áfrýjaði til Landsréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 5. febrúar 2024 í máli nr. E-4081/2023, Reykjavíkurborg gegn Persónuvernd og íslenska ríkinu, sem lýtur að tveimur ákvörðunum stofnunarinnar um vinnslu persónuupplýsinga á ábyrgð sveitarfélagsins í Seesaw-nemendakerfinu. Óskaði Persónuvernd jafnframt eftir leyfi til að áfrýja málinu beint til Hæstaréttar.
Hæstiréttur hefur fallist á að taka mál Reykjavíkurborgar á hendur Persónuvernd fyrir, án þess að það komi við í Landsrétti.

Fram kemur í ákvörðun Hæstaréttar að dómur í málinu hafi almenna þýðingu fyrir beitingu réttarreglna og túlkun laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sem sett voru árið 2018. Auk þess sem að fordæmisgildi dóms í málinu sé töluvert þar sem í því reyni í fyrsta sinn fyrir dómstólum á ákvörðun Persónuverndar um beitingu stjórnvaldssekta.

Sjá hér nánar ákvörðun Hæstaréttar.



Var efnið hjálplegt? Nei