Úttekt persónuverndarstofnunar í Lúxemborg á öryggi gagna hjá Skype og Microsoft

Systurstofnun Persónuverndar í Lúxemborg hefur á undanförnum mánuðum staðið fyrir úttekt á vinnslu persónuupplýsinga hjá dótturfyrirtækjum bandarísku fyrirtækjanna Skype og Microsoft þar í landi. Niðurstöður hennar liggur nú fyrir og leiddi hún ekki í ljós að þessi dótturfélög hefðu veitt bandarísku þjóðaröryggisstofnuninni aðgang að upplýsingum um evrópska viðskiptavini fyrirtækjanna. Þá benda niðurstöður úttektarinnar til þess að flutningur persónuupplýsinga frá fyrirtækjunum til tengdra félaga í Bandaríkjunum fullnægi þeim skilyrðum sem gerð eru fyrir flutningi upplýsinga í svonefndar „öruggar hafnir“ (e. Safe Harbour Principles).

Persónuvernd og systurstofnanir hennar í öðrum Evrópuríkjum eiga með sér náið samstarf, einkum um álitaefni sem varða vinnslu persónuupplýsinga í fleiri en einu ríki á Evrópska efnahagssvæðinu og vinnslu sem felur í sér flutning persónuupplýsinga milli ríkja.

Meðal þeirra viðfangsefna sem stofnanirnar eiga nú í samstarfi um er að upplýsa hvert sé eðli og umfang nánar tiltekinnar vinnslu bandarísku þjóðaröryggisstofnunarinnar á persónuupplýsingum um almenning í ríkjum á EES, einkum upplýsingum sem aflað er hjá eða frá fjarskiptafyrirtækjum, t.d. í svonefndu PRISM verkefni þjóðaröryggisstofnunarinnar.

Systurstofnun Persónuverndar í Lúxemborg hefur á undanförnum mánuðum staðið fyrir úttekt á vinnslu persónuupplýsinga hjá dótturfyrirtækjum bandarísku fyrirtækjanna Skype og Microsoft þar í landi. Niðurstöður hennar liggur nú fyrir og leiddi hún ekki í ljós að þessi dótturfélög hefðu veitt bandarísku þjóðaröryggisstofnuninni aðgang að upplýsingum um evrópska viðskiptavini fyrirtækjanna. Þá benda niðurstöður úttektarinnar til þess að flutningur persónuupplýsinga frá fyrirtækjunum til tengdra félaga í Bandaríkjunum fullnægi þeim skilyrðum sem gerð eru fyrir flutningi upplýsinga í svonefndar „öruggar hafnir“ (e. Safe Harbour Principles). Sjá nánar fréttatilkynningu frá persónuverndarstofnuninni í Lúxemborg.



Var efnið hjálplegt? Nei