Úrlausnir

Álit Persónuverndar vegna notkunar fingrafaralesara við afgreiðslu máltíða í mötuneytum

3.12.2007

Hinn 26. nóvember sl. komst Persónuvernd að niðurstöðu í máli er varðaði notkun fingrafaralesara við afgreiðslu máltíða í mötuneytum Víðistaðaskóla og Setbergsskóla.

 

13Hinn 26. nóvember sl. komst Persónuvernd að niðurstöðu í máli er varðaði notkun fingrafaralesara við afgreiðslu máltíða í mötuneytum Víðistaðaskóla og Setbergsskóla.

Erindi höfðu borist frá foreldrum barna í skólunum og af því tilefni var óskað eftir upplýsingum um tilgreind atriði frá Hollu í hádeginu, sem ber ábyrgð á fingrafaralesurunum.

Í bréfskiptum við Hollt í hádeginu kom m.a. fram að ekki væri unnið með fingrafaramyndir, heldur væri fingraförum umbreytt í einkvæmar talnarunnur sem væru tengdar kennitölum barnanna og þannig notaðar til þess að staðreyna hvort barn væri í áskrift hjá fyrirtækinu.

Einnig kom fram að leitað væri eftir samþykki foreldra og forsjármanna nemenda fyrir lestri fingrafara og að börnum þeirra sem ekki vildu veita slíkt samþykki stæði til boða að nota matarkort í staðinn. Þá yrðu upplýsingarnar ekki notaðar í öðrum tilgangi en til afgreiðslu máltíða.

Slík valkvæð notkun fingrafaralesara við afgreiðslu máltíða var ekki talin brjóta í bága við ákvæði 7. og 8. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Álit Persónuverndar.




Var efnið hjálplegt? Nei