Úrlausnir

Synjað um aðgang að upplýsingum úr fæðingaskrá og gögnum um fóstureyðingar

4.7.2007

Hinn 26. júní sl. hafnaði Persónuvernd beiðni landlæknis um leyfi til að veita aðgang að upplýsingum úr fæðingaskrá, sem og gögnum um fóstureyðingar, sem safnast hafa hjá embættinu, í þágu rannsóknarinnar „Langtímaáhrif ráðgjafar um getnaðarvarnir á óráðgerða þungun og notkun getnaðarvarna meðal kvenna sem farið hafa í fóstureyðingu.“

Hinn 26. júní sl. hafnaði Persónuvernd beiðni landlæknis um leyfi til að veita aðgang að upplýsingum úr fæðingaskrá, sem og gögnum um fóstureyðingar, sem safnast hafa hjá embættinu, í þágu rannsóknarinnar „Langtímaáhrif ráðgjafar um getnaðarvarnir á óráðgerða þungun og notkun getnaðarvarna meðal kvenna sem farið hafa í fóstureyðingu.“

Aðdragandi málsins er sá að Persónuvernd barst umsókn um heimild til vinnslu persónuupplýsinga vegna framangreindrar rannsóknar. Fram kom að verkefnið væri framhald af eldra verkefni sem unnið var á grundvelli leyfis frá forvera Persónuverndar, tölvunefnd. Það leyfi var m.a. bundið því skilyrði að öll nafngreind gögn, þ. á m. greiningarlykill og samþykkisyfirlýsingar, yrðu eyðilögð að lokinni úrvinnslu og eigi síðar en 1. október 1999. Samkvæmt framangreindri umsókn stóð hins vegar til að vinna frekar með umrædd gögn, m.a. afla frekari upplýsinga um þær konur sem tekið höfðu þátt í fyrri rannsókn. Yrðu þær upplýsingar sóttar í fæðingaskrá og gagnasafn landlæknis um fóstureyðingar.

Af hálfu Persónuverndar var þá greint frá því að áður en fjallað yrði um heimildir rannsakenda til að vinna með gögn fengin úr gagnasafni landlæknis yrði að meta heimildir hans til að veita aðgang að þessum gögnum. Í framhaldi af því barst Persónuvernd tölvubréf landlæknis þar sem fram kom að hann sæi ekkert því til fyrirstöðu að umsækjendur fengju aðgang að nauðsynlegum gögnum, að því tilskildu að rannsóknin fengi leyfi Persónuverndar og Vísindasiðanefndar. Var þess farið á leit að litið yrði á bréfið sem umsókn landlæknis um heimild til að veita aðgang að gögnunum. Í framhaldinu áttu sér stað bréfaskipti og bárust Persónuvernd m.a. afrit af bréfum Vísindasiðanefndar og landlæknisembættisins til rannsakenda, auk bréfs landlæknis til Persónuverndar vegna rannsóknarinar. Með bréfi Vísindasiðanefndar var umsókn rannsakenda hafnað vegna þess að ekki var gert ráð fyrir að leita eftir samþykki kvennanna sem um ræðir og þar sem í fyrri rannsókn frá 1999 hefði verið tekið fram að öllum gögnum yrði eytt og þannig ótvírætt gefið í skyn að gögnin yrðu ekki notuð í öðrum tilgangi en þar kom fram.

Í bréfum landlæknisembættisins kom hins vegar fram að þrátt fyrir að tilskilin leyfi lægju ekki fyrir hefði aðgangur að umræddum gögnum hefði þegar verið veittur fyrir mistök. Tekið hefði verið á málinu sem öryggisfráviki og öllum gögnum verið eytt. Þá gerði landlæknir grein fyrir þeim ráðstöfunum sem hann hefði gripið til í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að slíkt endurtæki sig.

Eftir sem áður lá fyrir beiðni landlæknisembættisins um heimild til þess að veita aðgang að upplýsingum úr fæðingaskrá og gögnum um fóstureyðingar og var hún rædd á fundi stjórnar Persónuverndar hinn 26. júní sl. Henni var synjað þar sem - Hvorki var fyrirhugað að fræða konurnar um umrædda vinnslu né að afla samþykkis þeirra. Þá lá fyrir að þegar gagna var aflað árið 1999 var konunum heitið því að farið yrði með upplýsingarnar sem trúnaðarmál og þeim eytt að lokinni úrvinnslu. - Í ljósi ábendinga landlæknis sjálfs um misbresti á öryggi var ekki talið að skilyrði laga um persónuvernd um viðeigandi öryggi væri uppfyllt. - Fyrirhugað var að fara í gögn um 4.600 aðgerðir en aðeins var þörf upplýsinga um 380 konur. Því var ekki uppfyllt það skilyrði laga um að vinnsla persónuupplýsinga skuli ekki vera umfram það sem nauðsyn krefur í þágu tilgangs. Með vísan til þessa og að virtu áliti Vísindasiðanefndar taldi Persónuvernd ekki efni til að veita landlækni umbeðið leyfi til að veita aðgang að upplýsingum úr fæðingaskrá og gögnum um fóstureyðingar sem safnast hafa hjá embættinu.

Ákvörðun Persónuverndar.



Var efnið hjálplegt? Nei