Starfsleyfi Myndmarks

Starfsleyfi fyrir Myndmark,

til að annast söfnun og skráningu upplýsinga sem varða fjárhagsmálefni og

lánstraust einstaklinga, í því skyni að miðla þeim til annarra,

sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 246/2001, um söfnun og miðlun upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust

og 4. tl. 1. mgr. 7. gr. reglna Persónuverndar nr. 698/2004.

Persónuvernd heimilar Myndmarki, samtökum þeirra sem dreifa myndefni í gegnum útleigu og heildsölu á Íslandi, kt. 490393-2299, Ármúla 19, Reykjavík, að safna og miðla tilteknum persónuupplýsingum sem varða fjárhag og lánstraust einstaklinga. Nánar tiltekið heimilar leyfi þetta Myndmarki að safna, frá aðilum sem leigja út myndefni, upplýsingum um vanskil á einn lista og veita upplýsingar af listanum til viðkomandi aðila í gegnum sérstakt tölvukerfi þeirra.

Starfsleyfið er bundið eftirfarandi skilmálum:

1. Söfnun og skráning upplýsinga

Tilhögun þeirrar vinnslu sem starfsleyfi þetta tekur til skal haga þannig að aðilar, sem eru félagar í Myndmarki, senda Myndmarki upplýsingar um þau vanskil sem eiga sér stað hjá hverjum og einum. Aðeins er heimilt að skrá upplýsingar um nöfn, kennitölur og vanskil, þ.e. hvort leigugjöld hafi ekki verið greidd eða mynd ekki verið skilað. Óheimilt er að skrá upplýsingar um vanskil á einni mynd nema liðnar séu a.m.k. 2 vikur frá því að leigutími rann út. Þá er óheimilt að skrá hærri vanskilafjárhæð vegna hverrar myndar en kr. 20.000 krónur og óheimilt er að skrá hærri fjárhæð vegna eins einstaklings, en sem nemur kr. 100.000.

Forsenda þess að aðila sé heimilt að senda Myndmarki upplýsingingar um vanskil nema shann viðhafi ráðstafanir til að tryggja áreiðanleika upplýsinganna, s.s. þá að afhenda leigutaka kvittun þegar hann skilar mynd.

Starfsleyfið heimilar ekki vinnslu upplýsinga sem eðli sínu samkvæmt geta ekki haft þýðingu við mat á lánstrausti hins skráða og aldrei er heimilt að skrá viðkvæmar persónuupplýsingar, sbr. 8. tl. 2. gr. laga nr. 77/2000.

Persónuupplýsingar sem eru óáreiðanlegar eða ófullkomnar skal afmá eða leiðrétta.

Óheimilt er að skrá og/eða miðla upplýsingum sem eldri eru en fjögurra ára. Þegar upplýsingar verða fjögurra ára gamlar skal þeim eytt eða þær varðveittar án persónuauðkenna.

2. Miðlun upplýsinga

Starfsleyfishafa er einungis heimilt að miðla upplýsingum um nafn og kennitölu einstaklings sem er í vanskilum og hvaða aðili stóð að skráningu viðkomandi einstaklings á vanskilalistann. Þegar kennitala einstaklings er slegin inn í tölvukerfi á viðkomandi útleigu, og þannig gerð fyrirspurn í gagnagrunn starfsleyfishafa um hvort vanskil séu fyrir hendi, skal umræddum upplýsingum aðeins miðlað til fyrirspyrjanda. Öll miðlun vanskilalistans í heild sinni er óheimil.

Óheimilt er að miðla upplýsingum um skuldara ef starfsleyfishafa er kunnugt um að sú krafa sem skráningin byggist á hafi verið greidd eða henni komið í skil með öðrum hætti. Þegar starfsleyfishafi gerir samninga við nýja félaga skal tryggt að fram komi að þeir skuldbindi sig til þess að senda starfsleyfishafa upplýsingar um að skuld hafi verið greidd eða henni með öðrum hætti verið komið í skil.

Sýni hinn skráði sjálfur fram á að umrædd krafa hafi verið að fullu greidd, eða henni komið í skil með öðrum hætti, er starfsleyfishafa óheimil öll frekari vinnsla upplýsinga með nafn hans.

Upplýsingar um skuldastöðu manna má ekki veita með þeim hætti að þær geti verið grundvöllur mats á fjárhagslegri stöðu annars en þess er þær varða.

3. Skyldur einstakra aðila sem leigja út myndir

Þeim sem eru félagar í Myndmarki ber að tilkynna Myndmarki þegar í stað um greiðslu skuldar. Verði Myndmarki kunnugt um misbresti á þessu skal Myndmark meina viðkomandi félaga um aðgang að vanskilalistanum. Ber sérhver félagi ábyrgð á áreiðanleika upplýsinga og að vitneskja um skil berist starfsleyfishafa. Jafnframt er félögum óheimilt að taka afrit af þeim upplýsingum á listanum, samtengja þær við aðrar skrár eða vinna með þær á nokkurn annan hátt.

4. Réttur hins skráða

Einstaklingur sem er á skrá starfsleyfishafa á, hvenær sem er, rétt á að fá vitneskju um hvaða upplýsingar um hann er eða hefur verið unnið með, tilgang vinnslunnar, hver fái, hafi fengið eða muni fá upplýsingar um hann, hvaðan upplýsingarnar hafi komið og hvaða öryggisráðstafanir séu viðhafðar við vinnsluna, að því marki sem það skerðir ekki öryggi vinnslunnar.

Hinn skráði á rétt á að fá endurrit eða ljósrit af þeim upplýsingum sem starfsleyfishafi hefur undir höndum um viðkomandi. Ekki má krefjast hærra endurgjalds af þessari þjónustu en sem nemur kostnaði.

Verða skal við beiðni hins skráða um upplýsingar svo fljótt sem verða má og eigi síðar en innan eins mánaðar frá móttöku beiðninnar. Ef sérstakar ástæður valda því að ómögulegt er að afgreiða erindið innan eins mánaðar er starfsleyfishafa heimilt að gera það síðar. Þegar svo hagar til skal hann þó, innan mánaðarfrestsins, gefa skriflegar skýringar á ástæðum tafarinnar og hvenær svars sé að vænta.

Hafi starfsleyfishafi í vörslum sínum frekari upplýsingar um hinn skráða en þær sem beiðni lýtur að skal hann gera hinum skráða grein fyrir því. Jafnframt skal gera hinum skráða grein fyrir rétti sínum til þess að fá að kynna sér efni skrár af eigin raun.

5. Skyldur starfsleyfishafa

5.1. Viðvörunarskylda

Áður en starfsleyfishafi safnar persónuupplýsingum í samræmi við ákvæði 2. gr. leyfis þessa skal hann gera hinum skráða viðvart og skýra honum frá þeim atriðum sem talin eru í 2. mgr. 16. gr. laga nr. 77/2000, með áorðnum breytingum. Slíka viðvörun skal senda eigi síðar en 14 dögum áður en upplýsingunum er miðlað í fyrsta sinn.

5.2. Vandaðir vinnsluhættir

Starfsleyfishafi skal, við alla vinnslu persónuupplýsinga gæta þess að haga vinnslunni með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og í samræmi við vandaða vinnsluhætti persónuupplýsinga. Í því felst m.a. að hann skal gæta þess að upplýsingarnar séu áreiðanlegar og uppfærðar eftir þörfum. Persónuupplýsingar sem eru óáreiðanlegar eða ófullkomnar, miðað við tilgang vinnslu þeirra, skal afmá eða leiðrétta. Hafi röngum eða villandi upplýsingum verið miðlað eða þær notaðar ber starfsleyfishafi, eftir því sem honum er frekast unnt, að hindra að það hafi áhrif á hagsmuni hins skráða.

5.3. Öryggi vinnslu

Starfsleyfishafi skal gera viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar gegn ólöglegri eyðileggingu, gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi.

5.4. Vinnsluaðili

Starfsleyfishafa er heimilt að semja við tiltekinn aðila um að annast, í heild eða að hluta, þá vinnslu persónuupplýsinga sem hann ber ábyrgð á enda hafi hann áður sannreynt að umræddur vinnsluaðili geti framkvæmt viðeigandi öryggisráðstafanir og viðhaft innra eftirlit.

Hverjum þeim er starfar í umboði starfsleyfishafa eða vinnsluaðila, að vinnsluaðila sjálfum meðtöldum, og hefur aðgang að persónuupplýsingum, er aðeins heimilt að vinna með persónuupplýsingar í samræmi við fyrirmæli ábyrgðaraðila nema lög mæli fyrir á annan veg.

5.5. Starfsmenn

Hver sá sem starfar hjá starfsleyfishafa er þagnarskyldur um þau atriði sem hann kemst að í starfi sínu og leynt eiga að fara. Sérhver starfsmaður starfsleyfishafa skal undirrita þagnarheit og nýir starfsmenn skulu undirrita slíkt heit þegar þeir hefja störf hjá starfsleyfishafa.

5.6. Annað

Auk ákvæða starfsleyfis þessa skal starfsleyfishafi ávallt fara að lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau lög eru á hverjum tíma, sbr. nú lög nr. 77/2000 með áorðnum breytingum, auk annarra laga og réttarreglna sem í gildi eru hverju sinni, sbr. m.a. reglugerð nr. 246/2001 um söfnun og miðlun upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust og reglur nr. 299/2001 um öryggi persónuupplýsinga.

6. Gildistími

Starfsleyfi þetta gildir til 1. október 2007.





Var efnið hjálplegt? Nei