Nýtt starfsleyfi Lánstrausts; Lögaðilar

Starfsleyfi fyrir Lánstraust hf.

til að annast söfnun og skráningu upplýsinga sem varða fjárhagsmálefni og lánstraust lögaðila, í því skyni að miðla þeim til annarra skv. 2. gr. reglugerðar nr. 246/2001 um söfnun og miðlun upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust, sbr. 2. mgr. 45. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

1. gr.

Skilgreiningar og gildissvið

Lánstrausti hf., kt. 710197-2109, í leyfi þessu nefnt starfsleyfishafi, er heimilt að safna og miðla tilteknum persónuupplýsingum sem varða fjárhag og lánstraust lögaðila, samkvæmt því sem nánar greinir í leyfinu.

Starfsleyfið heimilar ekki vinnslu upplýsinga sem eðli sínu samkvæmt geta ekki haft þýðingu við mat á fjárhag og lánstrausti hins skráða. Upplýsingar um skuldastöðu aðila má ekki veita með þeim hætti að þær geti verið grundvöllur mats á fjárhagslegri stöðu annars en þess er þær varða.

Starfsleyfi þetta heimilar ekki samtengingu skráa sem falla undir ákvæði leyfisins, nema að því leyti sem fellur innan 3. gr. starfsleyfis þessa. Að öðru leyti skal halda aðskildum þeim skrám sem til verða samkvæmt 2. gr. Þó má bjóða áskrifendum að leita samtímis í tveimur eða fleirum af þeim skrám sem haldnar eru á grundvelli starfsleyfis þessa.

2. gr.

Söfnun og skráning

upplýsinga um vanskil o.fl.

Starfsleyfi þetta heimilar einungis söfnun þeirra fjárhagsupplýsinga um lögpersónur sem tilteknar eru í 2. og 3. gr. leyfis þessa. Auk upplýsinga um nöfn, heimilisföng og kennitölur má safna og miðla upplýsingum um vanskil, samkvæmt því sem nánar greinir í starfsleyfinu.

Starfsleyfishafi má einungis safna upplýsingum með tvenns konar hætti:

a. Frá kröfuhöfum.

i. Upplýsingar um vanskil

Frá köfuhöfum má einungis safna upplýsingum um skuldir sem nema a.m.k. kr. 30.000,- að höfuðstóli hver um sig. Starfsleyfishafi skal áður hafa fengið óyggjandi skrifleg gögn um tilvist viðkomandi skuldar og um að a.m.k. eitt eftirfarandi skilyrða sé uppfyllt:

1. Skuldari hafi skriflega gengist við því fyrir kröfuhafa að skuldin sé í gjalddaga fallin.

2. Skuldari hafi fallist á að greiða skuldina með sátt sem er aðfararhæf samkvæmt 1. gr. aðfararlaga nr. 90/1989.

3. Skuldara hafi sannanlega verið birt greiðsluáskorun, vegna skuldarinnar, sem uppfylli öll skilyrði 7. gr. laga nr. 90/1989, þar á meðal að um sé að ræða skuld sem byggist á 5., 6., 7., 8. eða 10. tl. 1. mgr. 1. gr. laganna.

4. Skuldara hafi með dómi, úrskurði eða áritaðri stefnu verið gert skylt að greiða skuldina.

5. Skuldari hafi með sérstakri yfirlýsingu í láns- eða skuldaskjali, sem skuldin er sprottin af, fallist á að kröfuhafa sé heimilt að óska skráningar á vanskilum, enda séu skilyrði til þeirrar heimildar uppfyllt. Slík heimild skal vera áberandi og skýr og þurfa vanskil að hafa varað í a.m.k. 40 daga. Kröfuhafi sem óskar skráningar á grundvelli slíkrar heimildar skal um leið ábyrgjast að honum sé ekki kunnugt um að skuldari hafi nokkrar réttmætar mótbárur gegn greiðslu skuldarinnar. Beiðni um skráningu skal undirrituð af kröfuhafa sjálfum eða fyrirsvarsmanni, lögmanni í þjónustu hans eða fulltrúa hans.

6. Fyrir liggi sannanlega vanefndur nauðasamningur sem skuldari hefur gert og áskrifandi er aðili að.

ii. Upplýsingar um greiðsluhegðun

Að auki má safna frá kröfuhöfum eftirfarandi upplýsingum um greiddar kröfur þeirra:

1. Kennitölu skuldara.

2. Gjalddaga kröfu.

3. Greiðsludegi kröfu.

Slíkum upplýsingum um greiðsluhegðun má einungis safna hafi greiðandi fengið skriflega aðvörun um að upplýsingum um greiðsluhegðun verði miðlað til starfsleyfishafa og í hvaða tilgangi. Þetta skal gert með áberandi og skýrum hætti. Aðvörun má t.d. birta á reikningi, umsókn um reikningsviðskipti eða með skriflegri aðvörun til þeirra viðskiptavina sem eru í föstum reikningsviðskiptum við áskrifanda.

Þó má ekki vinna með upplýsingar um greiðsluhegðun, sbr. 2. gr. staflið a.ii., nema viðkomandi krafa sé ágreiningslaus með öllu, þ.e. enginn ágreiningur hafi risið um kröfuna, s.s. tilvist hennar, gjalddaga og fjárhæð, kröfuhafi hafi gerst sekur um viðtökudrátt eða aðrar afsakanlegar ástæður séu fyrir greiðsludrætti viðkomandi. Rísi ágreiningur um greidda kröfu, eftir að skráðar hafa verið upplýsingar um hana hjá starfsleyfishafa, skal öllum upplýsingum um kröfuna eytt án tafar.

Öllum greiðsluhegðunarupplýsingum hjá starfsleyfishafa um tiltekna kröfu skal eytt, eigi síðar en þegar tvö ár eru liðin frá greiðsludegi viðkomandi kröfu. Þá skal öllum upplýsingum um greiðsluhegðun, sem fengnar eru frá tilteknum kröfuhafa, eytt um leið og samningi um slíka upplýsingamiðlun, milli starfsleyfishafa og viðkomandi kröfuhafa lýkur.

b. Úr opinberum gögnum.

Úr skrám sem aðgengilegar eru almenningi má einungis safna eftirtöldum upplýsingum:

1. Upplýsingum dómstóla um skuldara skv. uppkveðnum dómum, eða skv. áritunum dómara á stefnur í málum þar sem ekki hefur verið mætt fyrir stefnda við þingfestingu máls eða þingsókn hefur síðar fallið niður af hans hálfu, sbr. 113. gr. laga nr. 91/1991. Slíkar upplýsingar má aðeins skrá ef um er að ræða skuld eða skuldir sama skuldara við tiltekinn kröfuhafa sem nema a.m.k. kr. 30.000,- að höfuðstól hver skuld.

2. Upplýsingum um framkvæmd fjárnáma, skv. málaskrám um fjárnámsbeiðnir sem sýslumenn halda í samræmi við 4. gr. reglugerðar nr. 17/1992. Þessi heimild tekur eingöngu til þeirra upplýsinga sem tilgreindar eru í 4. tl., 6. tl., seinni hluta 10. tl. og í 11. tl. 4. gr. reglugerðarinnar. Upplýsingar má skrá um árangurslaus fjárnám án tillits til fjárhæðar viðkomandi fjárnámskrafna, en um fjárnám með árangri því aðeins að fjárhæð viðkomandi fjárnámskröfu nemi a.m.k. kr. 30.000,-

3. Upplýsingum um uppboð, sem sýslumaður hefur auglýst í samræmi við 1. mgr. 20. gr. og 2. mgr. 26. gr. laga nr. 90/1991.

4. Upplýsingum um úrskurði um töku búa til gjaldþrotaskipta, sem fengnar eru í skrám þeim um gjaldþrotaskipti, sem héraðsdómstólar halda í samræmi við reglugerð nr. 226/1992. Heimild þessi tekur eingöngu til þeirra upplýsinga sem tilgreindar eru í 2., 3. og 6. tl. 4. gr. reglugerðarinnar. Slíkar upplýsingar er einungis heimilt að varðveita þar til birt hefur verið auglýsing um skiptalok.

5. Upplýsingum um nauðasamningsumleitanir, innkallanir og skiptalok, sem birtar hafa verið í Lögbirtingarblaðinu, skv. 5. mgr. 85. gr. og 2. mgr. 162. gr. laga nr. 21/1991.

6. Upplýsingum um greiðslustöðvanir sem fengnar eru í skrám þeim um gjaldþrotaskipti sem héraðsdómstólar halda í samræmi við reglugerð nr. 226/1992. Aðeins er átt við þær upplýsingar sem tilgreindar eru í 2. gr. reglugerðarinnar.

3. gr.

Upplýsingakerfi um

fjárhagsskuldbindingar

Starfsleyfi þetta heimilar rekstur upplýsingakerfis sem hefur það að markmiði veita upplýsingar um fjárhagsskuldbindingar tiltekins lögaðila hjá lánveitendum eða öðrum aðilum sem tengdir eru upplýsingakerfinu.

Óheimilt er að gera fyrirspurn í upplýsingakerfi starfsleyfishafa nema að beiðni forsvarsmanns skráðs lögaðila. Skal sú fyrirspurn framkvæmd eigi síðar en þremur virkum dögum eftir undirritun beiðninnar. Þegar fyrirspurn er gerð í upplýsingakerfið skal starfsleyfishafi senda beiðanda afrit niðurstöðunnar.

Starfsleyfishafi skal varðveita upplýsingar um fyrirspurnir, þ.e. hver gerði fyrirspurn, um hvern og um niðurstöður fyrirspurnarinnar í 2 ár.

Rekstur kerfisins er að öðru leyti bundinn eftirfarandi skilmálum:

a. Að öll gagnaskipti milli starfsleyfishafa og þeirra sem tengjast umræddu kerfi séu á dulkóðuðu formi og útilokað að gera fyrirspurnir nema frá starfsstöð starfsleyfishafa, eða aðila sem samið hefur um tengingu við kerfið.

b. Engum er heimilt að láta í té upplýsingar til nota við rekstur kerfisins nema það sé í samræmi við 8. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

c. Að einungis tilteknir starfsmenn starfsleyfishafa, sem undirriti sérstakt trúnaðarheit, vinni við upplýsingakerfið.

d. Að einungis verði unnt að gera fyrirspurnir um skuldastöðu hins skráða hjá þeim sem hafa gert samninga við starfsleyfishafa um tengingu við upplýsingakerfið.

e. Aðeins verði unnið með upplýsingar um:

Kennitölu hins skráða

Höfuðstól skuldar eða ábyrgðarkröfu

Útgáfudag láns

Lánstíma

Tegund skuldbindingar

Tegund láns (víxill / skuldabréf, o.s.frv.)

Upplýsingar um tryggingu (fasteignaveð, veð í bifreið, sjálfskuldarábyrgð o.s.frv.)

Heildarstöðu láns

Vanskilafjárhæð

Vaxtaprósentu

Árlega greiðslubyrði

Útistandandi lánsumsóknir

Einungis má vinna með upplýsingar sem hafa raunverulega þýðingu um skuldastöðu viðkomandi lögaðila á þeim tíma þegar fyrirspurn fer fram. Hins vegar er ekki heimilt að vinna með upplýsingar sem orðnar eru fjögurra ára gamlar og hafa ekki lengur þýðingu fyrir mat á skuldastöðu.

4. gr.

Miðlun upplýsinga sem safnað er skv. 2. gr.

Upplýsingum þeim sem starfsleyfishafi má safna og skrá samkvæmt 2. gr. má hann miðla með eftirfarandi hætti:

a. Með símaþjónustu og beinlínutengingu:

Starfsleyfishafi má veita áskrifendum upplýsingar með símaþjónustu að því marki sem heimilt er samkvæmt 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 246/2001. Þá má veita eftirfarandi upplýsingar með beinlínutengingu sem gerir kleift að fletta upp einstökum aðilum, einum í einu:

a.1. Upplýsingar frá kröfuhöfum.

Af þeim upplýsingum sem starfsleyfishafi fær frá kröfuhöfum, þ.e. skv. 2. gr. staflið a.i., má hann aðeins miðla til annarra upplýsingum um nafn, heimilisfang og kennitölu skuldara, hvort vanskil séu fyrir hendi þegar uppfletting fer fram og um fjárhæðir vanskila. Veita skal hverjum sem þess óskar almennar upplýsingar um hvaðan slíkar upplýsingar eru sóttar í skrána.

Af þeim upplýsingum sem starfsleyfishafi fær frá kröfuhöfum, þ.e. skv. 2. gr. staflið a.ii., má hann aðeins miðla til annarra upplýsingum um kennitölu greiðanda og miðgildi daga sem líða frá gjalddaga krafna á hendur honum til greiðsludags þeirra. Verður uppgefið miðgildi daga að taka til allra krafna sem starfsleyfishafi hefur undir höndum. Miðgildi þetta má aðeins gefa upp sem eina tölu og því aðeins að þegar þessar upplýsingar eru veittar liggi fyrir hjá starfsleyfishafa upplýsingar frá eigi færri en tveimur kröfuhöfum, skv. 2. gr. staflið a.ii., um greiðslu á a.m.k. 10 viðskiptakröfum samtals.

a. 2. Upplýsingar úr almennt aðgengilegum skrám.

Af þeim upplýsingum sem starfsleyfishafi safnar úr opinberum gögnum og almennt aðgengilegum skrám, þ.e. skv. b-lið 2. gr., má hann aðeins miðla upplýsingum um nafn, heimilisfang og kennitölu skuldara, fjárhæð kröfu og hvort um sé að ræða dóm, úrskurð, áritun á stefnu, framkvæmt fjárnám, nauðungarsölu, gjaldþrotaskipti, nauðasamningsumleitanir, innköllun eða skiptalok. Taka skal fram hvaðan viðkomandi upplýsingar eru fengnar.

b. Með afhendingu skrár til Reiknistofu bankanna:

Starfsleyfishafi má afhenda Reiknistofu bankanna heildarsafn þeirra upplýsinga sem hann safnar úr opinberum og almennt aðgengilegum skrám, sbr. b-lið 2. gr., með þeirri aðferð og þeim skilyrðum sem greinir í a-lið þessarar greinar. Um notkun Reiknistofu bankanna á þeirri skrá fer nú samkvæmt gildandi lögum og stjórnvaldsreglum um meðferð persónuupplýsinga, auk starfsleyfa sem Reiknistofan kann að fá og vinnslusamningum sem ábyrgðaraðilar hafa gert eða kunna að gera við hana.

c. Með afhendingu skrár til einstakra banka og sparisjóða vegna heimabankaþjónustu:

Starfsleyfishafi má semja beint við einstaka banka og sparisjóði um afhendingu heildarskrár gagngert og eingöngu til endursölu í heimabankaþjónustu. Sú skrá skal einungis bera með sér þær upplýsingar sem starfsleyfishafi safnar úr opinberum og almennt aðgengilegum skrám, skv. b-lið 2. gr., og skal einungis aðgengileg með þeirri aðferð og þeim skilyrðum sem greinir í a. lið þessarar greinar. Að öðru leyti skal um þá notkun, eftir því sem við á, fara samkvæmt þeim skilmálum sem almennt gilda um skrána samkvæmt starfsleyfi þessu, m.a. um rekjanleika fyrirspurna o.s.frv.

d. Með því að afhenda lista yfir fyrirhugaðar framhaldssölur á fasteignum:

Þessi heimild er takmörkuð við þær framhaldssölur sem sýslumaður hefur þegar auglýst í samræmi við 2. mgr. 26. gr. laga nr. 90/1991.

e. Með „vanskilavakt":

Starfsleyfishafi má veita þjónustu sem felst í samkeyrslum skilgreindra kennitalna, skv. listum frá áskrifendum, við þá vanskilaskrá sem hann heldur.

 

5. gr.

Óheimil miðlun upplýsinga

Eyðing og leiðrétting upplýsinga

Þegar starfsleyfishafi selur aðgang að skrá skal hann setja það að skilyrði að viðkomandi áskrifandi skuldbindi sig að viðlagðri ábyrgð til að tilkynna um niðurfall skuldar þegar í stað til starfsleyfishafa. Á þetta við hvort heldur um er að ræða almennt aðgengilegar upplýsingar eða ekki. Sýni hinn skráði fram á að umrædd krafa hafi verið að fullu greidd, eða henni komið í skil með öðrum hætti, er starfsleyfishafa þ.a.l. óheimil öll frekari birting nafns viðkomandi í þeirri skrá.

Ef starfsleyfishafi hefur unnið með upplýsingar sem eru rangar, villandi eða ófullkomnar skal hann sjá til þess að upplýsingarnar verði leiðréttar, og þeim eytt eða við þær aukið ef umræddur annmarki getur haft áhrif á hagsmuni hinn skráða. Hafi slíkum upplýsingum verið miðlað eða þær notaðar ber starfsleyfishafa eftir því sem honum er frekast unnt hindra að það hafi áhrif á hagsmuni hins skráða.

Óheimilt er að skrá og/eða miðla fjárhagsupplýsingum sem eru eldri en fjögurra ára. Upplýsingar um töku bús til gjaldþrotaskipta má þó varðveita þar til birt hefur verið auglýsing um skiptalok. Þegar upplýsingar verða fjögurra ára gamlar skal skv. framanrituðu jafnharðan taka þær af þeirri skrá sem upplýsingum er miðlað úr en starfsleyfishafa er þó heimilt að varðveita upplýsingarnar í þrjú ár til viðbótar, enda lúti þær ströngum aðgangstakmörkunum og þess gætt að ekki hafi aðrir aðgang að þeim en þeir starfsmenn sem nauðsynlega þurfa starfs síns vegna. Að þeim fresti liðnum skal þeim eytt.

6. gr.

Réttur hins skráða

Starfsleyfishafa er skylt að afhenda skráðum aðila endurrit eða ljósrit af þeim upplýsingum sem hann hefur undir höndum um viðkomandi aðila. Ekki má krefjast hærra endurgjalds af þessari þjónustu en sem nemur þeim upphæðum sem innheimta má á hverjum tíma skv. gjaldskrá forsætisráðuneytis fyrir ljósrit og afrit sem veitt eru á grundvelli upplýsingalaga, sbr. nú 2. gr. gjaldskrár nr. 838/2004.

Þá er starfsleyfishafa skylt að greina skráðum aðila, endurgjaldslaust, frá því með hvaða hætti miðgildi daga, sem tilgreint er í 1. tl. a-liðar 4. gr. er fengið. Leggi skráður aðili fram sönnun þess, að útreikningur miðgildis sé rangur ber starfsleyfishafa að gera leiðréttingu til samræmis við framlögð gögn.

Starfsleyfishafi skal verða við beiðni hins skráða um upplýsingar svo fljótt sem verða má og afhenda þær eigi síðar en innan tveggja vikna frá móttöku beiðninnar. Ef sérstakar ástæður valda því að ómögulegt er fyrir starfsleyfishafa að afgreiða erindið innan þess frests er honum heimilt að gera það síðar. Í slíkum tilvikum skal, innan ofangreinds frests, gefa hlutaðeigandi skriflegar skýringar á ástæðum tafarinnar og hvenær svars sé að vænta.

Hafi starfsleyfishafi í vörslum sínum frekari upplýsingar um hinn skráða en þær sem beiðni lýtur að skal starfsleyfishafi gera beiðanda grein fyrir því. Jafnframt skal gera hinum skráða grein fyrir rétti sínum til þess að fá að kynna sér efni skrár af eigin raun.

 

7. gr.

Skyldur starfsleyfishafa

7.1. Viðvörunarskylda

Þegar starfsleyfishafi safnar persónuupplýsingum í samræmi við ákvæði 2. gr. leyfis þessa skal hann gera hinum skráða viðvart og skýra honum frá þeim atriðum sem talin eru í 2. mgr. 18. gr. laga nr. 77/2000, með áorðnum breytingum. Skal hann senda slíka viðvörun eigi síðar en 14 dögum áður en hann miðlar upplýsingunum í fyrsta sinn.

Starfsleyfishafa er þó ekki skylt að senda slíka viðvörun ef ætla má að hinum skráða sé þegar kunnugt um vinnsluna, svo sem vegna þess að hann hafi áður fengið viðvörun frá starfsleyfishafa um þá vinnslu sem hann framkvæmir um hinn skráða, og ekki liggi fyrir að grundvallarbreyting hafi orðið á þeirri vinnslu. Þetta á þó ekki við hafi lengri tími en eitt ár liðið frá síðustu skráningu.

7.2. Samningsgerð

Þegar starfsleyfishafi gerir samninga við áskrifendur skal tryggt að fram komi að áskrifendur skuldbindi sig til þess að senda starfsleyfishafa upplýsingar um það ef skuld er greidd eða henni með öðrum hætti komið í skil. Þá skal það vera skilyrði að áskrifandi skuldbindi sig til að afrita ekki skránna, samtengja hana við aðra skrá eða vinna með hana á nokkurn annan hátt, þótt viðkomandi kunni að fá tækifæri til slíks, t.d. fyrir mistök. Loks skal áskrifandi skuldbinda sig, synji hann um lánveitingu á grundvelli upplýsinga úr skránum, að greina viðkomandi frá þeirri ástæðu og jafnframt greina frá heimild viðkomandi til að fá að vita hvaða upplýsingar séu um hann færðar í skrár starfsleyfishafa.

7.3. Öryggi vinnslu

Starfsleyfishafi skal gera viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar gegn ólöglegri eyðileggingu, gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi. Starfsleyfishafi skal viðhafa innra eftirlit með reglubundnum hætti. Að öðru leyti þarf starfsleyfishafi að uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 299/2001 um öryggi persónuupplýsinga. Eru ákvæði reglnanna hluti skilmála þessa leyfis.

7.4. Vinnsluaðili

Starfsleyfishafa er heimilt að semja við tiltekinn aðila um að annast, í heild eða að hluta, þá vinnslu persónuupplýsinga sem hann ber ábyrgð á, enda hafi hann áður sannreynt að umræddur vinnsluaðili geti framkvæmt viðeigandi öryggisráðstafanir og viðhaft innra eftirlit.

Hverjum þeim er starfar í umboði starfsleyfishafa eða vinnsluaðila, að vinnsluaðila sjálfum meðtöldum, og hefur aðgang að persónuupplýsingum, er aðeins heimilt að vinna með persónuupplýsingar í samræmi við fyrirmæli ábyrgðaraðila nema lög mæli fyrir á annan veg.

7.5. Starfsmenn

Hver sá sem starfar hjá starfsleyfishafa er þagnarskyldur um þau atriði sem hann kemst að í starfi sínu og leynt eiga að fara. Sérhver starfsmaður starfsleyfishafa skal undirrita þagnarheit þegar eftir útgáfu leyfis þessa, hafi hann ekki þegar gert það. Nýir starfsmenn skulu undirrita slíkt heit þegar þeir hefja störf hjá starfsleyfishafa.

7.6. Skýrslugjöf til Persónuverndar

Starfsleyfishafi skal ársfjórðungslega tilkynna Persónuvernd um hve margir hafi aðgang að skrá hans og hverjir það eru, hve margir einstaklingar og fyrirtæki eru á skránni og hve mikið sé skráð af hverri tegund upplýsinga.

7.7. Annað

Auk ákvæða starfsleyfis þessa skal starfsleyfishafi ávallt fara að þeim ákvæðum laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000 sem tilgreind eru í 2. mgr. 45. gr. þeirra laga auk annarra laga og réttarreglna sem í gildi eru hverju sinni, sbr. m.a. reglugerð nr. 246/2001 um söfnun og miðlun upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust og reglur nr. 299/2001 um öryggi persónuupplýsinga.

 

8. gr.

Gildistími

Starfsleyfi þetta tekur gildi hinn 1. september 2006 og gildir til 1. september 2007.





Var efnið hjálplegt? Nei