Þjónustuborð

Þjónustuborð fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki vegna innleiðingar nýrrar persónuverndarlöggjafar

Samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni er eitt af verkefnum Persónuverndar að sinna leiðbeiningum til þeirra sem vinna með persónuupplýsingar. Til að uppfylla þá skyldu hefur Persónuvernd sett á fót þjónustuborð fyrir fyrirtæki í tengslum við innleiðingu nýrrar persónuverndarlöggjafar, sem tók gildi þann 15. júlí 2018. Þjónustuborðið er ætlað litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem óska leiðbeininga í tengslum við innleiðingu nýju löggjafarinnar. Persónuvernd mun leitast við að svara öllum þeim erindum sem berast þjónustuborðinu innan þriggja til fimm virkra daga. 


Athugið: Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Sjá persónuverndarstefnu

Fáni EvrópusambandsinsStarfsemi þjónustuborðsins er styrkt af Evrópusambandinu - The European Union's Rights, Equality and Citizenship Programme (2014-2020)

Svör við fyrirspurnum sem berast á þjónustuborðið eru unnin af Persónuvernd sem ber fulla ábyrgð á þeim. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ber enga ábyrgð á notkun þeirra upplýsinga sem svörin hafa að geyma.


Var efnið hjálplegt? Nei