Þjónustuborð fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki vegna innleiðingar nýrrar persónuverndarlöggjafar
Samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni er eitt af verkefnum Persónuverndar að sinna leiðbeiningum til þeirra sem vinna með persónuupplýsingar. Til að uppfylla þá skyldu hefur Persónuvernd sett á fót þjónustuborð fyrir fyrirtæki í tengslum við innleiðingu nýrrar persónuverndarlöggjafar, sem tók gildi þann 15. júlí 2018. Þjónustuborðið er ætlað litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem óska leiðbeininga í tengslum við innleiðingu nýju löggjafarinnar. Persónuvernd mun leitast við að svara öllum þeim erindum sem berast þjónustuborðinu innan þriggja til fimm virkra daga.