Fréttir

Drög að reglum um rafræna vöktun lögð fram til kynningar

2.4.2004

Persónuvernd hefur lagt fram til kynningar drög að nýjum reglum um rafræna vöktun og vinnslu efnis sem verður til við vöktunina, s.s. hljóð- og myndefnis.

Persónuvernd hefur lagt fram til kynningar drög að nýjum reglum um rafræna vöktun og vinnslu efnis sem verður til við vöktunina, s.s. hljóð- og myndefnis, en í 4. mgr. 37. gr. laga nr. 77 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga er kveðið á um að Persónuvernd setji slíkar reglur. Að lokinni endanlegri gerð reglnanna verða þær birtar í Stjórnartíðindum, sem og á heimasíðu Persónuverndar. Þessum reglum er einkanlega ætlað að leysa úr óvissu manna um það að hvaða marki vinnuveitendur og skólastjórnendur mega vakta starfsmenn og nemendur - þ.e. fylgst með símnotkun, netnotkun og þess háttar.



Var efnið hjálplegt? Nei