Fréttir
UTmessan 2016 - Persónuvernd og internet allra hluta
Þann 5. febrúar 2016 flutti Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, fyrirlestur á UTmessunni um Persónuvernd og internet allra hluta.
Í fyrirlestrinum var einblínt á þær hættur sem Internet allra hluta getur haft í för með sér fyrir persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Geta einstaklingar tekið ákvörðun um og ráðið yfir persónuupplýsingum sínum og miðlun þeirra í sítengdum heimi snjalltækja (e. Smart things)?
Tilmæli evrópska starfshópsins voru einnig sett í samhengi við nýja evrópureglugerð um persónuvernd sem er á lokastigum samþykktarferlis innan Evrópusambandsins. Þá var leitast við að leiðbeina hagsmunaaðilum um það hvort, og eftir atvikum hvernig, unnt er að beita íslenskri löggjöf um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga í tengslum við þá gríðarlegu vinnslu persónuupplýsinga sem internet allra hluta óumflýjanlega kallar á.