Fréttir

Nýr forstjóri

2.9.2015

Þann 1. september 2015 tók Helga Þórisdóttir við embætti forstjóra Persónuverndar. Helga var skipuð í embættið af Ólöfu Nordal, innanríkisráðherra, þann 1. júní sl.
Helga-Thorisdottir
Þann 1. september 2015 tók Helga Þórisdóttir við embætti forstjóra Persónuverndar. Helga var skipuð í embættið af Ólöfu Nordal, innanríkisráðherra, þann 1. júní sl.

Helga Þórisdóttir lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1995 og námi í stjórnun frá IESE Business School á Spáni 2015. Helga hefur setið margs konar námskeið á sviði lögfræði, stjórnsýslu og stjórnunar. Hún hefur starfað hjá embætti ríkissaksóknara, á nefndasviði Alþingis, hjá EFTA í Brussel og menntamálaráðuneytinu. Frá árinu 2008 hefur Helga starfað hjá Lyfjastofnun, sem sviðsstjóri lögfræðisviðs og staðgengill forstjóra. Árið 2012 til 2013 var hún settur forstjóri Lyfjastofnunar.

Stofnunin býður Helgu hjartanlega velkomna til starfa.

Jafnframt eru Sigrúnu Jóhannesdóttur, fyrrum forstjóra Persónuverndar, færðar innilegar þakkir fyrir góð störf í þágu stofnunarinnar undanfarin 15 ár. Sigrún lét af embætti þann 31. júlí sl. en hún hafði þá starfað sem forstjóri Persónuverndar frá árinu 2000.


Var efnið hjálplegt? Nei