Fréttir

Viðbrögð ESB við PRISM-verkefni Bandaríkjastjórnar

27.6.2013

Í kjölfar frétta af  PRISM-verkefni Bandaríkjastjórnar, sem gerir ráð fyrir víðtæku eftirliti með einstaklingum á netinu, hefur Evrópusambandið gert athugasemdir við að Bandaríkjamenn safni upplýsingum um einstaklinga innan ESB með verkefninu.  Ákveðið hefur verið að setja á fót vinnuhóp ESB og Bandaríkjanna og er gert ráð fyrir að formaður 29. gr. starfshópsins, sem sinnir ráðgjafarhlutverki um persónuverndarmálefni hjá ESB, verði meðal nefndarmanna. Gert er ráð fyrir að vinnuhópurinn taki til starfa í júlí.
Í kjölfar frétta af  PRISM-verkefni Bandaríkjastjórnar, sem gerir ráð fyrir víðtæku eftirliti með einstaklingum á netinu, hefur Evrópusambandið gert athugasemdir við að Bandaríkjamenn safni upplýsingum um einstaklinga innan ESB með verkefninu.  Ákveðið hefur verið að setja á fót vinnuhóp ESB og Bandaríkjanna og er gert ráð fyrir að formaður 29. gr. starfshópsins, sem sinnir ráðgjafarhlutverki um persónuverndarmálefni hjá ESB, verði meðal nefndarmanna. Gert er ráð fyrir að vinnuhópurinn taki til starfa í júlí. Persónuvernd mun fylgjast náið með framþróun málsins innan ESB.

Hér má sjá upptöku af fréttmannafundi með Vivane Reding frá 14. júní 2013.


Var efnið hjálplegt? Nei