Fréttir

Yfirlýsing frá frönsku persónuverndarstofnuninni

21.2.2013

Franska persónuverndarstofnunin birti nýverið á heimasíðu sinni yfirlýsingu, fyrir hönd evrópsku persónuverndarstofnananna, varðandi stefnu Google í tengslum við friðhelgismál. Í yfirlýsingunni kemur fram að Google gaf engin svör við þeim fyrirspurnum sem evrópsku persónuverndarstofnanirnar sendu til fyrirtækisins vegna trúnaðarstillinga þess.
Munu evrópsku persónuverndarstofnanirnar stofna vinnuhóp sem mun þrýsta á að Google bregðist við þeim ábendingum sem að þeim var beint.

Franska persónuverndarstofnunin birti nýverið á heimasíðu sinni yfirlýsingu, fyrir hönd evrópsku persónuverndarstofnananna, varðandi stefnu Google í tengslum við friðhelgismál. Í yfirlýsingunni kom fram að Google gáfu engin svör við þeim fyrirspurnum sem evrópsku persónuverndarstofnanirnar sendu til fyrirtækisins vegna trúnaðarstillinga þess. Því munu evrópsku persónuverndarstofnanirnar stofna vinnuhóp sem mun þrýsta á að Google bregðist við þeim ábendingum sem að þeim var beint.

Yfirlýsing frönsku persónuverndarstofnunarinnar frá 18. febrúar 2013


Var efnið hjálplegt? Nei