Fréttir

Nýjar reglur um persónuvernd í burðarliðnum

9.8.2012

Af hálfu framkvæmdastjórnar ESB hafa verið lögð fram drög að nýjum reglum um persónuvernd í þeim tilgangi að mæta aukinni internetvæðingu í heiminum. Íslensk lög um meðferð persónuupplýsinga byggja á tilskipun 95/46/EB en sú tilskipun er komin nokkuð til ára sinna. Fyrirliggjandi tillögum framkvæmdastjórnarinnar er m.a. ætlað að efla sjálfsákvörðunarrétt hins skráða um hvaða persónuupplýsingar um hann er unnið með og lækka kostnað fyrirtækja í tengslum við meðferð persónuupplýsinga með því að einfalda regluverkið. Tillögurnar  gera annars vegar ráð fyrir að sett verði reglugerð um meðferð persónuupplýsinga, í þeim tilgangi að samræma reglur allra aðildarríkja innan EES og draga úr misræmi í framkvæmd. Hins vegar er gert ráð fyrir að sett verði tilskipun um meðferð persónuupplýsinga í lögreglumálum og við framkvæmd viðurlaga.
Af hálfu framkvæmdastjórnar ESB hafa verið lögð fram drög að nýjum reglum um persónuvernd í þeim tilgangi að mæta aukinni internetvæðingu í heiminum. Íslensk lög um meðferð persónuupplýsinga byggja á tilskipun 95/46/EB en sú tilskipun komin nokkuð til ára sinna. Fyrirliggjandi tillögum framkvæmdastjórnarinnar er m.a. ætlað að efla sjálfsákvörðunarrétt hins skráða um hvaða persónuupplýsingar um hann er unnið með og lækka kostnað fyrirtækja í tengslum við meðferð persónuupplýsinga með því að einfalda regluverkið. Tillögurnar  gera annars vegar ráð fyrir að sett verði reglugerð um meðferð persónuupplýsinga, í þeim tilgangi að samræma reglur allra aðildarríkja innan EES og draga úr misræmi í framkvæmd. Hins vegar er gert ráð fyrir að sett verði tilskipun um meðferð persónuupplýsinga í lögreglumálum og við framkvæmd viðurlaga.

Drög að reglugerð um meðferð persónuupplýsinga
Drög að tilskipun um meðferð persónuupplýsinga í lögreglumálum og við framkvæmd viðurlaga

Fréttasíða framkvæmdastjórnarinnar um tillögurnar




Var efnið hjálplegt? Nei