Fréttir

Nýr formaður stjórnar Persónuverndar skipaður

21.9.2011

Innanríkisráðherra hefur skipað Björgu Thorarensen, lagaprófessor við lagadeild Háskóla Íslands, nýjan formann stjórnar Persónuverndar. Verður hún þá annar formaður stjórnarinnar. Tekur hún við af Páli Hreinssyni, hæstaréttardómara, en hann hefur tekið við starfi dómara hjá EFTA-dómstólnum í Lúxemborg.

Innanríkisráðherra hefur skipað Björgu Thorarensen, lagaprófessor við lagadeild Háskóla Íslands, nýjan formann stjórnar Persónuverndar. Verður hún þá annar formaður stjórnarinnar. Tekur hún við af Páli Hreinssyni, hæstaréttardómara, en hann hefur tekið við starfi dómara hjá EFTA-dómstólnum í Lúxemborg. Páll hefur setið sem formaður stjórnar Persónuverndar frá upphafi eða árinu 2000. Páll var áður formaður tölvunefndar frá árinu 1999.

Persónuvernd þakkar Páli fyrir vel unnin störf á liðnum árum og býður Björgu velkomna til starfa.



Var efnið hjálplegt? Nei