Fréttir

Erindi forstjóra Persónuverndar á ráðstefnu Privacy Laws & Business

20.8.2018

Forstjóri Persónuverndar, Helga Þórisdóttir, flutti nýverið tvö erindi á árlegri ráðstefnu Privacy Laws & Business, sem haldin var dagana 2. - 4. júlí í Cambridge á Englandi.

Fyrra erindi Helgu fjallaði um persónuvernd í tengslum við erfðafræðirannsóknir á Íslandi. Var þar meðal annars greint frá þeim álitaefnum sem Persónuvernd hefur tekið afstöðu til á því sviði, auk þess sem fjallað var um íslenskt lagaumhverfi hvað varðar vísindarannsóknir á heilbrigðissviði og annað því tengt. Í seinna erindi sínu ræddi Helga um samstarf á sviði Evrópska efnahagssvæðisins frá sjónarhóli persónuverndar.

Brot úr fyrra erindi Helgu  

Brot úr seinna erindi Helgu  

Vefsíða Privacy Laws & Business



Var efnið hjálplegt? Nei