Fréttir

EDPB samþykkir álit á drögum að jafngildisákvörðun ESB fyrir S-Kóreu

29.9.2021

Á fundi sínum þann 27. september sl. samþykkti Evrópska persónuverndarráðið (e. EDPB) álit á drögum framkvæmdastjórnar ESB um jafngildisákvörðun fyrir S-Kóreu. Í álitinu er annars vegar áhersla lögð á almenna þætti persónuverndarreglugerðarinnar og hins vegar á aðgengi opinberra yfirvalda að gögnum sem flutt eru frá EES til S-Kóreu. 

Í álitinu er komist að þeirri niðurstöðu að samræmi sé á milli lykilþátta persónuverndarreglugerðarinnar og regluverks S-Kóreu um vernd persónuupplýsinga. Má þar nefna ákvæði er fjalla um: 

- skilgreiningar á hugtökum (t.d. persónuupplýsingar; vinnsla; skráður einstaklingur),
- lögmæta vinnslu,
- takmörkun tilgangs,
- varðveislu gagna, öryggi og trúnað, og
- gagnsæi.

Hvað varðar aðgang opinberra yfirvalda að persónuupplýsingum sem fluttar eru frá EES til S-Kóreu bendir EDPB á að persónuverndarlöggjöf S-Kóreu gildi einnig um vinnslu persónuupplýsinga í þágu löggæslu, án takmarkana. Hins vegar sé vinnsla persónuupplýsinga á sviði þjóðaröryggis undanskilin tilteknum ákvæðum löggjafarinnar, þó þannig að fara þurfi að meginreglum og tryggja þurfi grundvallarréttindi einstaklinga. 

Loks er EDPB sammála því mati framkvæmdastjórnar ESB að S-Kórea búi yfir sjálfstæðu og virku eftirlitskerfi með löggjöfinni.

 
Álit EDPB (á ensku)
Fréttatilkynning EDPB



Var efnið hjálplegt? Nei