Fréttir: 2012
Fyrirsagnalisti
Aukið álag hjá Persónuvernd
Stöðug aukning hefur orðið í fjölda innkominna erinda hjá Persónuvernd, en það sem af er þessu ári hafa 612 ný mál verið skráð hjá stofnuninni. Til samanburðar voru nýskráð mál þann 1. maí 2008 alls 361. Er því um 75% aukningu að ræða á fjórum árum. Á sama tíma hefur starfsmönnum stofnunarinnar fækkað. Haldi áfram sem horfir má búast við því að umtalsverðar tafir, umfram það sem nú er, verði á afgreiðslu mála hjá stofnuninni seinni part árs auk þess sem stofnunin sér ekki fram á að geta sinnt lögbundnum verkefnum sínum með fullnægjandi hætti.
Reglur um skiptingu starfa á milli stjórnar og starfsmanna Persónuverndar.
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2012
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn er haldinn hátíðlegur í níunda sinn í dag, 7. febrúar. Þemað í ár er „Tengjum kynslóðir” og munu yfir 60 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag þar sem til umfjöllunar verða ýmis verkefni þar sem tæknin tengir kynslóðir saman.
Máli gegn Persónuvernd vísað frá í héraði
Í gær var kveðinn upp dómur í máli sem höfðað var gegn Persónuvernd. Málið varðari heimildir Seðlabanka Íslands til vinnslu persónuupplýsinga í þágu gjaldeyriseftirlits. Af hálfu stefnda Persónuverndar var bent á að hún hafði ekki gefið út neitt leyfi til Seðlabanka Íslands heldur byggðist heimild bankans á ákvæðum settra laga. Auk þess ætti stefnandi ekki aðild þar sem hann hefði ekki sérstakra, verulegra og lögvarinna hagsmuna að gæta. Á það var fallist og málinu því vísað frá dómi. Var stefnanda gert að greiða málskostnað.
Evrópski persónuverndardagurinn 2012
Evrópski persónuverndardagurinn var haldinn 28. janúar síðastliðinn í sjötta skipti. Dagurinn er haldinn hátíðlegur þennan dag þar sem Evrópuráðssamningur um vernd einstaklinga varðandi vélræna vinnslu persónupplýsinga var gerður þennan dag árið 1981. Ætlunin með Persónuverndardeginum er að vekja athygli almennings á réttinum til persónuverndar og friðhelgi einkalífs. Í tilefni dagsins sótti forstjóri Persónuverndar ráðstefnu hjá dönsku persónuverndarstofnuninni. Þá gaf Persónuvernd einnig út leiðbeiningar um hvernig stjórna skuli friðhelgisstillingum á samfélagsvefsíðunni Facebook.
Leiðbeiningar Persónuverndar um friðhelgisstillingar á Facebook
Í tilefni af Evrópska persónuverndardeginum þann 28. janúar síðastliðinn ákvað Persónuvernd að útbúa leiðbeiningar til aðstoðar einstaklingum í tengslum við persónuupplýsingar þeirra á Facebook. Friðhelgisstillingar samfélagsvefsíðunnar hafa tekið breytingum á undanförnum misserum sem gerir það að verkum að einstaklingar hafa eftir vill ekki uppfært friðhelgisstillingar sínar svo að upplýsingum þeirra sé veitt nægileg vernd. Hér er að finna leiðbeiningar Persónuverndar um æskilegar friðhelgisstillingar á Facebook.
Úrbætur hjá Facebook
Írska persónuverndarstofnunin hefur gert úttekt á meðferð persónuupplýsinga hjá Facebook. Tilefnið var m.a. umfjöllun Alríkisráðs viðskiptamála í Bandaríkjunum (e. Federal Trade Commission). Þar kom fram að Facebook hefði brotið á persónuvernd notenda. Í kjölfar írsku úttektarinnar mun Facebook bæta fræðslu til notenda sinna og gera vissar breytingar hjá sér.
Aukning á málafjölda á milli ára hjá Persónuvernd
- Fyrri síða
- Næsta síða