Lög um persónuvernd

Núgildandi og eldri lög um persónuvernd.

Lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga

Lög nr. 90/2018 öðluðust gildi hinn 15. júlí 2018. Samhliða gildistöku þeirra féllu úr gildi lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga

Lög nr. 75/2019 um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi

Lög nr. 75/2019 um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679

Hinn 27. apríl 2016 skrifuðu forsetar Evrópuþingsins og -ráðsins undir nýja evrópska persónuverndarlöggjöf sem kom til framkvæmda í Evrópu 25. maí 2018. Lögin voru innleidd í íslenskan rétt með lögum nr. 90/2018.

Íslenska þýðingu á reglugerðinni má nálgast hér (lög nr. 90/2018)  
Enska útgáfu reglugerðarinnar má nálgast hér.

Lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (brottfallin)

Lög nr. 77/2000 öðluðust gildi hinn 1. janúar 2001. Samhliða gildistöku þeirra féllu úr gildi lög nr. 121/1989 um skráningu og meðferð persónuupplýsinga, Persónuvernd, tók til starfa við gildistöku laganna og hafði eftirlit með framkvæmd þeirra.

Lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 95/46/EB (brottfallin)

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 95/46/EB frá 24. október 1995 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga var innleidd í íslenskan rétt með lögum nr. 77/2000. 

Íslensk þýðing tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 95/46/EB frá 24. október 1995 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga. (pdf)

Ensk útgáfu tilskipunarinnar: "Directive 95/46/EC of the European Parliament and of the Council of 24 October 1995 on the protection of individuals with regard to the processing of personal data and on the free movement of such data".

Eldri lög um meðferð persónuupplýsinga

Lög nr. 121/1989 um skráningu og meðferð persónuupplýsinga. Féllu úr gildi 1. janúar 2001.

Lög nr. 39/1985 um kerfisbundna skráningu á upplýsingum er varða einkamálefni - Féllu úr gildi 31. desember 1989.


Lög nr. 63/1981 um kerfisbundna skráningu á upplýsingum er varða einkamálefni - Féllu úr gildi 31. desember 1985.



Var efnið hjálplegt? Nei