Fréttir

Persónuvernd stofnun ársins 2012

15.5.2012

  • Stofnun_arsins_litid

Stofnun_arsins_litidÁ föstudaginn voru kynntar niðurstöður könnunar um Stofnun ársins 2012 við hátíðlega athöfn á Hilton Hótel Nordica. Um er að ræða starfsánægjukönnun sem gerð var á vegum SFR stéttarfélags í almannaþjónustu og fjármálaráðuneytisins. Hlaut Persónuvernd hæstu einkunn sem stofnun ársins 2012 í flokki lítilla stofnanna með heildareinkunnina 4,7 af 5.

Á föstudaginn voru kynntar niðurstöður könnunar um Stofnun ársins 2012 við hátíðlega athöfn á Hilton Hótel Nordica. Um er að ræða starfsánægjukönnun sem gerð var á vegum SFR stéttarfélags í almannaþjónustu og fjármálaráðuneytisins. Hlaut Persónuvernd hæstu einkunn sem stofnun ársins 2012 í flokki lítilla stofnanna með heildareinkunnina 4,7 af 5.

Könnunin náði til yfir 200 stofnana og  tæplega 50 þúsund starfsmanna á almennum og opinberum vinnumarkaði. Stofnunum er skipt í flokka eftir stærð. Hjá Persónuvernd starfa í dag 7 manns og er stofnunin því í flokki minni stofnana.
Átta þættir eru mældir í könnuninni og er mest vægi gefið trúverðugleika stjórnenda, ánægju og stolts, starfsanda og vinnuskilyrða. Heildareinkunn Persónuverndar var 4,745 af 5 mögulegum en meðaltal heildareinkunna í þessum flokki var 4,018.

 
Sjá nánar á heimasíðu SFR.




Var efnið hjálplegt? Nei