Fréttir

Vertu netsnjall!

7.9.2011

SAFT í samstarfi við Nýherja hefur gefið út bækling um árvekni á netinu. Bæklingurinn er ætlaður börnum og unglingum og forráðamönnum þeirra. Hann hefur að geyma ýmis heilræði um hvernig hægt sé að vera „netsnjall“ og hvetur um leið til gagnrýnnar hugsunar um það sem finnst á netinu.

Í fréttatilkynningu frá SAFT segir enn fremur:

„Í bæklingnum eru meðal annars ráðleggingar um hvernig netnotendur geta stýrt „prófílnum“ á netinu og hvernig passa megi upp á persónuupplýsingar og lykilorð. Einnig er bent á að það sem þú skrifar á netið situr þar eftir um ókomna tíð. Jafnframt er fólk hvatt til að hugsa sig vel um áður en það setur myndir eða myndbönd á netið.“

Bæklingnum og veggspjaldi verður dreift í þá grunnskóla sem SAFT heimsækir í vetur.

Þá er hægt að nálgast bæklinginn á hér og veggspjaldið hér.

Var efnið hjálplegt? Nei