Fréttir

Franska Persónuverndarstofnunin sektar Google

23.3.2011

Franska persónuverndarstofnunin (CNIL) hefur sektað fyrirtækið Google um 100.000 evrur vegna upplýsingasöfnunar fyrirtækisins.

Franska persónuverndarstofnunin (CNIL) hefur komist að þeirri niðurstöðu að Google hafi í nokkur ár safnað bæði tæknilegum upplýsingum og  persónuupplýsingum án vitundar hinna skráðu í gegnum Wifi-kerfi notenda. Aflaði Google upplýsinganna meðal annars með sk. Google-bílum en þeir hafa það hlutverk að mynda umhverfi sitt og þannig búa til t.d. Google Street View. Var tilgangurinn sagður vera að veita þjónustu á grundvelli staðsetningar, s.s. með Google Maps, Street View og Latitude. Var niðurstaða stofnunarinnar sú að Google skyldi sektað um 100.000 evrur vegna ólögmætrar upplýsingasöfnunar fyrirtækisins.

 



Var efnið hjálplegt? Nei