Ýmis bréf: 2012

Fyrirsagnalisti

Réttur foreldra til vitneskju um símnotkun barna sinna

Persónuvernd veitti fjarskipafyrirtæki leiðbeinandi svar um rétt foreldra til vitneskju um símnotkun barna sinna, þ.e. barna sem nota Frelsi en eru þó skráðir notendur tiltekins númers. Persónuvernd vísaði til inntaks forsjár og að í henni felst m.a. sú skylda að vernda barn gegn andlegu og líkamlegu ofbeldi og annarri vanvirðandi háttsemi. Einnig var vísað til þess að almennt fara foreldrar með upplýsingarétt barna sinna og meginreglan er sú að þeir geta fengið slíkar upplýsingar. 

Umboðsmaður lýkur máli varðandi eftirlitsmyndavél

Umboðsmaður Alþingis hefur lokið umfjöllun um kvörtun yfir meðferð Persónuverndar á máli vegna eftirlitsmyndavélar í bílastæðahúsi. Persónuvernd hafði gert vettvangsathugun til að ganga úr skugga um tilvist vélarinnar. Athugun hennar leiddi ekki í ljós að slík vél væri til staðar og hafði hún þá fellt málið niður. Umboðsmaður féllst á að Persónuvernd mætti gera slíka athugun, en taldi að henni hafi borið að gera tilraun til að gera aðila viðvart þegar hún kom í bílastæðahúsið.

Upplýsingar um Íslendinga sem hafa ætlað að gifta sig erlendis

Persónuvernd hefur veitt innanríkisráðuneytinu álit um heimild þess að afhenda Útlendingastofnun vottorð sem það hefur gefið íslenskum ríkisborgurum sem hafa ætlað utan til að gifta sig. Í álitinu segir m.a. að að því marki sem þessi vottorð séu Útlendingastofnun nauðsynleg til að geta framfylgt lögum um dvalarleyfi samrýmist miðlunin reglum persónuverndarlaga.

Upplýsingar um Íslendinga sem hafa ætlað að gifta sig erlendis

Persónuvernd hefur veitt innanríkisráðuneytinu álit um heimild þess til að afhenda Útlendingastofnun vottorð sem það hefur gefið íslenskum ríkisborgurum sem hafa ætlað utan til að gifta sig. Í álitinu segir m.a. að að því marki sem þessi vottorð séu Útlendingastofnun nauðsynleg til að geta framfylgt lögum um dvalarleyfi samrýmist miðlunin reglum persónuverndarlaga.

Skráning búðarhnupls ólögráða

Persónuvernd hefur svarað erindi Árborgar um viðbragðsáætlun vegna brota barna og ungmenna. Í áætluninni var gert ráð fyrir að búðir myndu skrá nöfn og kennitölur barna/ungmenna sem talin væru hnupla úr búðum, og um viðbrögð þeirra og framkomu. Persónuvernd taldi ekki vera heimilt að búðir gerðu skrár um þessi börn. Hins vegar gæti þeim verið lögskylt að senda tilkynningar til barnaverndarnefndar.

Skráning á ólögráða búðarhnuplurum

Persónuvernd hefur svarað erindi Árborgar um viðbragðsáætlun vegna brota barna og ungmenna. Í áætluninni var gert ráð fyrir að búðir myndu skrá nöfn og kennitölur barna/ungmenna sem talin væru hnupla úr búðum, og um viðbrögð þeirra og framkomu. Persónuvernd taldi ekki vera heimilt að búðir gerðu skrár um þessi börn. Hins vegar gæti þeim verið lögskylt að senda tilkynningar til barnaverndarnefndar.

Flutningur persónuupplýsinga úr landi

Persónuvernd hefur veitt leiðbeinandi svar um flutning persónuupplýsinga til Bandaríkjanna. Um er að ræða vinnslu vegna s.k. siðferðislínu og flutning upplýsinga frá Alcoa Fjarðaáli sf. til Alcoa Inc. í Bandaríkjunum. Fyrir liggur að það fyrirtæki, og aðrir vinnsluaðilar þar, eru á lista yfir öruggar hafnir hjá  bandaríska viðskiptaráðuneytinu og hafa skuldbundið sig til að hlíta reglum þess um friðhelgi einkalífs. Persónuvernd veitti m.a. leiðsögn um hvernig haga skuli fræðslu um vinnsluna.
Síða 1 af 4


Var efnið hjálplegt? Nei