Umsagnir

Umsögn um breytingartillögu við frumvarp um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu

5.6.2012

Persónuvernd hefur veitt um umsögn um breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu. Með tillögunni er m.a. lagt til að til verði ný skrá hjá landlækni, þ.e. skrá um ígrædd lækningatæki. Persónuvernd leggst gegn því að tillagan verði samþykkt í óbreyttri mynd. Um það vísar Persónuvernd til ákvæða stjórnarskrár um friðhelgi einkalífs og til almennra sjónarmiða um mikilvægi skýrrar og markvissar stjórnsýslu. Það sé til þess fallið að valda ruglingi og óskilvirkri framkvæmd að tvær stofnanir hafi eftirlit með sömu atriðum (lækningartækjum), þ.e. bæði landlæknir og Lyfjastofnun. Þá sé óljóst að hvaða marki ákvæðum frumvarpsins sé ætlað að hafa afturvirk áhrif.

Umsögn um breytingartillögu velferðarnefndar Alþingis við frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, með síðari breytingum (eftirlit með heilbrigðisþjónustu).

Athygli Persónuvernd hefur verið vakin á breytingartillögu velferðarnefndar við frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, með síðari breytingum (eftirlit með heilbrigðisþjónustu) (þskj. 1353, 679. mál á 140. löggjafarþingi 2011-2012).

Af nefndaráliti velferðarnefndar (þskj. 1352) mætti ætla að Björg Thorarensen, formaður stjórnar Persónuverndar og Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar, hafi mætt á fund nefndarinnar til að ræða framangreinda breytingartillögu. Hið rétta er að formaður stjórnar og forstjóri mættu á fund nefndarinnar til að ræða þá nýútkomið leiðbeinandi svar stofnunarinnar til Læknafélags Íslands um afhendingu persónugreinanlegra upplýsinga um allar konur með brjóstafyllingar og að ekki var rætt um breytingartillöguna á fundinum.

Persónuvernd hefur ekki fengið umrædda breytingartillögu til umsagnar né tjáð sig um hana að öðru leyti. Hún vill hins vegar með bréfi þess taka fram að hún leggst gegn því að tillagan verði að lögum í óbreyttri mynd. Um það vísast í fyrsta lagi til almennra persónuverndarsjónarmiða, sbr. 71. gr. stjórnarskrárinnnar, 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og ákvæða laga nr. 77/2000.

Í öðru lagi vísar hún til almennra sjónarmiða um mikilvægi skýrrar og markvissrar stjórnsýslu. Í umræddri breytingartillögu er lagt til að til verði ný skrá sem landlæknir haldi, s.k. skrá yfir ígrædd lækningatæki. Á síðasta ári var eftirlit með öryggi lækningatækja hins vegar sérstaklega fært frá landlækni til Lyfjastofnunar með 17. gr. laga nr. 28/2011 um breytingu á lögum nr. nr. 41/2007, um landlækni, með síðari breytingum, og um brottfall laga nr. 18/2003, um Lýðheilsustöð. Það er til þess fallið að valda miklum ruglingi í hugum borgaranna og óskilvirkri framkvæmd í stjórnsýslu ef tvö stjórnvöld, þ.e. landlæknir og Lyfjastofnun, hafa eftirlit með sömu málum. Þá er efnið óskýrt, m.a. vegna skorts á skýringum hugtaka.  Loks er óljóst hvort eða að hvaða marki ákvæðum frumvarpins er ætlað að hafa hafa afturvirk áhrif.

Þá er mikilvægt að undirbúningur að lagabreytingum sem lúta m.a. að takmörkunum á stjórnarskrárvernduðum mannréttindum sé vandaður. Persónuvernd er tilbúin til að leggja sitt af mörkum í samvinnu um lagabreytingar á málefnasviði stofnunarinnar.




Var efnið hjálplegt? Nei