Ný starfsleyfi fyrir Lánstraust hf.

Þann 1. nóvember sl. tóku gildi ný starfsleyfi fyrir fyrirtækið Lánstraust hf.

Þann 1. nóvember sl. tóku gildi ný starfsleyfi fyrir fyrirtækið Lánstraust hf. til að annast söfnun og skráningu upplýsinga sem varða fjárhagsmálefni og lánstraust einstaklinga, annars vegar, og lögaðila, hins vegar í því skyni að miðla þeim til annarra.

 

Í nýjum starfsleyfum hefur sú breyting verið gerð á þágildandi starfsleyfum fyrirtækisins að bætt hefur verið inn ákvæðum um að starfsleyfishafa sé heimilt að safna upplýsingum frá áskrifendum þegar það skilyrði er uppfyllt að skuldara hafi sannanlega verið birt boðun í fyrirtöku fjárnámsgerðar sem ekki hefur verið unnt að ljúka vegna fjarveru hans.

 

Starfsleyfin gilda til 1. nóvember árið 2008.




Var efnið hjálplegt? Nei