Upplýsingaréttur

Upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga

9.8.2006

Við rekum fyrirtæki og okkur hefur borist erindi manns sem fer fram á að við gefum honum upplýsingar um vinnslu okkar á persónuupplýsingum um hann sjálfan. Ber okkur að verða við beiðninni?

Já. Hinn skráði á rétt á að fá upplýsingar um sjálfan sig, þ.e.a.s. það hvaða upplýsingar um hann þú hefur undir höndum. Hann á líka rétt á að fá að vita hvaða öryggisráðstafanir eru viðhafðar, nema slíkt skerði öryggi vinnslunnar. Að því er þennan fyrirvara varðar verður að greina á milli hinna ýmsu öryggisráðstafana. Ráðstafanir sem eiga að tryggja að óviðkomandi geti ekki fengið aðgang að persónupplýsingum myndu falla undir þennan fyrirvara en annars konar öryggisráðstafanir sjaldnast. Þá gilda, eðli málsins samkvæmt, sérreglur um ýmis tilvik s.s. upplýsingar sem lögregla notar við rannsókn sakamáls.

  • Hér er að finna ítarlegri umfjöllun um upplýsingarétt þinn.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica