Hvar eru skráðar upplýsingar um mig?
Getur Persónuvernd sagt mér hvaða upplýsingar eru skráðar um mig og hvar þær er að finna?
Nei, Persónuvernd hefur ekki upplýsingar um það hvar hver og einn er skráður, né hvað er um hann skráð. Hins vegar er hér á heimasíðu Persónuverndar hægt að leita í skrá yfir vinnslu persónuupplýsinga sem tilkynnt hefur verið um. Með því að skoða skrána getur þú e.t.v. fengið nokkra hugmynd um hvar hugsanlega eru skráðar um þig persónuupplýsingar. Samkvæmt 18. gr. laga nr. 77/2000 , um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga getur þú sent aðila sem vinnur með persónuupplýsingar fyrirspurn um það hvort hann vinni með upplýsingar um þig og þá hvaða upplýsingar. Þá getur þú spurt um tilgang vinnslunnar, hver fær, hefur fengið eða mun fá uplýsingar um þig; hvaðan upplýsingarnar hafa komið; hvaða öryggisráðstafanir eru viðhafðar við vinnslu, o.s.frv.
Hér er að finna ítarlegri umfjöllun um upplýsingarétt þinn.

