Spurningar og svör

Læknisskoðanir að kröfu vinnuveitanda

Hvaða reglur gilda um læknisskoðanir að kröfu vinnuveitanda?

Almennt er talið að vinnuveitandi hafi frjálsar hendur í því að setja þau skilyrði sem hann vill að starfsfólk sitt uppfylli. Um heilsufarsupplýsingar gilda þó sérstakar reglur og er vinnuveitanda ekki heimilt að krefja starfsfólk um upplýsingar um heilsuhagi nema að því leyti er varðar mætingarskyldu og þá eingöngu hvort viðkomandi starfsmaður sé veikur og hvenær. Efist vinnuveitandi aftur á móti um veikindi starfsmannsins getur hann engu að síður krafið starfsmanninn um læknisvottorð. Í slíku vottorði kæmi þó eingöngu fram hvort viðkomandi hafi verið veikur eður ei en ekki væri talið málefnalegt að lýsa veikindunum.

Í vissum tilvikum, s.s. þegar um störf sem geta haft í för með sér áhættu ellegar eru unnin á varúðarverðu vinnusvæði, hefur verið talið réttmætt að vinnuveitandi geri ríkari kröfur til starfsmanna með það í huga að koma í veg fyrir slys eða tjón. Í því skyni getur verið eðlilegt að starfsfólk gangi undir vímuefnapróf, t.d. ef viðkomandi starfamaður stýrir kraftmikilli vél eða tæki, eða að starfsfólk fari í almenna skoðun til þess að ganga úr skugga um hreysti, s.s. ef unnið er við áhættusamar aðstæður.

Stundum er í lögum kveðið á um að starfsmönnum sé skylt að gangast undir eftirlit, skoðanir, mælingar og rannsóknir til að mynda samkvæmt 2. mgr. 69. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Slík lagaskylda er þó miðar að því að koma í veg fyrir atvinnusjúkdóma og atvinnutengda sjúkdóma og er nánar kveðið á um skylduna í reglugerðum nr. 920/2006, um skipulag og framkvæmd vinnuvendarstarfs á vinnustöðum, nr.921/2006, um varnir gegn álagi vegna hávaða á vinnustöðum og nr. 922/2006, um varnir gegn álagi vegna vélræns titrings á vinnustöðum. Samkvæmt reglugerðunum miðast ofangreind skylda til að gangast undir heilbrigðisskoðun við það að unnið sé á vinnustað þar sem aðstæður eru slíkar að heilsutjón geti hlotist af og heilsufarsskoðun getur komið í veg fyrir eða heft atvinnusjúkdóma eða atvinnutengda sjúkdóma.

Það skal haft í huga að vinnuveitandi á almennt ekki rétt á að fá upplýsingar um heilsu starfsmanna úr læknisskoðun nema upp að því marki hvort viðkomandi starfsmaður sé fær um að gegna starfanum. Þetta á bæði við um heilsufarsskoðun að kröfu vinnuveitanda og sem byggð er á lagaskyldu.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica