Er foreldrum leyfilegt að stilla MSN spjallforrit þannig að þau geti lesið öll samskipti barna sinna eftir á?

Samkvæmt 1. gr. lögræðislaganna, nr. 71/1997, öðlast einstaklingar lögræði þegar þeir ná átján ára aldri. Fram að þeim tíma fara foreldrar eða forsjáraðilar eftir atvikum með réttindi og skyldur barna sinna. Í skyldum foreldra felst m.a. að annast barn sitt á þann veg sem best hentar högum þess og þörfum og verja það fyrir öllu ofbeldi, líkamlegu og andlegu, sbr. 1. og 2. mgr. 28. gr. barnalaga, nr. 76/2003. Þá er ætlast til þess að foreldrar hafi samráð við barnið áður en málefnum þess er ráðið til lykta eftir því sem aldur og þroski gefur tilefni til eins og fram kemur í 6. mgr. sama ákvæðis.

Af ofangreindu er ljóst að foreldrum er ekki einungis heimilt heldur beinlínis skylt að fylgjast með barni sínu og gæta að högum þess. Eftirlit með netnotkun barns fellur hér undir, s.s. eins og samskipti í gegnum spjallforrit á veraldarvefnum. Gæta verður þó meðalhófs í þessum efnum og er ekki úr vegi að foreldrar láti börn sín vita hvernig málum er fyrir komið og samráð sé aukið eftir því sem barnið eldist og þroskast.